01. júlí, 2006
Tvær spjallsíður, sem vanalega setja ekki inn margar fréttir nema það séu nokkuð traustar heimildir fyrir þeim, hafa sett inn fréttir um leikmannakaup í dag.
- Dave Usher á The Liverpool Way segir að Hatem Trabelsi, hægri bakvörðurinn frá Túnis sé á leiðinni til Liverpool. Trabelsi er nýbúinn að klára samning sinn við Ajax og getur því komið á frjálsri sölu. Usher heldur því fram að samningurinn við Daniel Alves sé út úr spilinu. Þannig að í stað þess að eyða 12-13 milljónum punda í Daniel Alves þá muni Rafa eyða um 15 milljónum punda í Dirk Kuyt, Trabelsi (ókeypis) og Jermaine Pennant.
- Sem færir okkur að næstu frétt, en YNWA halda því fram að Jermaine Pennant muni koma til Liverpool á næstu dögum. YNWA menn telja að Pennant geti komið á um 5 milljónir punda, en Liverpool þurfi bara að borga 3, þar sem Birgmingham skuldi Liverpool enn einhverja peninga frá kaupunum á Emile Heskey.
YNWA tala um að Pennant sé Liverpool aðdáandi (eru það ekki allir?) og því sé ekki búist við öðru en að skiptin gangi hratt fyrir sig eftir að Birmingham og Liverpool komast að kaupverði.
Þannig að samkvæmt þessu, þá eru þetta svona:
Daniel Alves + 3 milljónir = Pennant + Kuyt + Trabelsi
Eru þetta góð skipti?