beach
« Argentína | Aðalsíða | Trabelsi og Pennant á leiðinni? »

01. júlí, 2006
HM: Portúgal í undanúrslit!

rooney_stamp_carvalho.jpg

Og þar með er þátttöku leikmanna Liverpool á HM lokið, eftir að Englendingar töpuðu í vító fyrir Portúgal í dag. Peter Crouch spilaði síðasta hálftímann og framlengingu og var margfalt nær því að skapa mark eða skora sjálfur heldur en Wayne Rooney hafði verið fyrsta klukkutímann. Steven Gerrard lék allan leikinn og lét verja hjá sér spyrnu í vító, á meðan Jamie Carragher var settur inná á 117. mínútu til þess eins að geta tekið víti, en hann lét Ricardo líka verja frá sér, sem og Chelsea-maðurinn Frank Lampard sem fullkomnaði martraðarmót sitt með sínu víti.

Ég var tilbúinn með reiðipistil um Sven Göran Eriksson, sem lætur nú af störfum sem landsliðsþjálfari Englendinga eftir sex ár sem hafa lofað miklu en skilað nákvæmlega engu. Ég hef verið ósammála flestu sem hann hefur gert í þessari keppni og fundist nær ótrúlegt að, eftir sex ár skuli hann enn hafa verið að prófa sig áfram með leikaðferðir í 16-liða úrslitum þessarar keppni. Á endanum var það þó ekki honum að kenna að þeir duttu út í dag.

Vafalítið munu ensku blöðin fjalla um þá Lampard, Gerrard og Carragher sem létu allir Ricardo verja frá sér víti í bráðabananum. Þeir verða eflaust málaðir sem skúrkar dagsins og talað verður um að þeir hafi brugðist trausti ensku þjóðarinnar. Svo munu þeir eflaust eftir ár leika í auglýsingu fyrir Pizza Hut með bréfpoka á höfðum sínum, eins og Stuart Pearce og Gareth Southgate gerðu eftir EM fyrir 10 árum síðan.

En ég er nánast fullviss um að Englendingar munu hlífa manninum sem var virkilega sökudólgurinn í dag. Því þótt hann hafi fengið erfitt hlutverk, einn frammi, og jafnvel þótt Englendingar hafi verið með fín tök á þessum leik, þá er alveg ljóst í mínum huga (og Einars, sem ég ræddi við eftir leikinn og orð hans sannfærðu mig um sök málsins) að ungstirnið/ofurhetjan/undrabarnið WAYNE ROONEY skeit á sig í dag. Upp á bak!

Hvað var hann að hugsa? Að traðka á fjölskyldudjásnum Ricardo Carvalho, eftir að búið var að dæma aukaspyrnu á þann síðarnefnda? Og að innsigla svo brottvísunina með því að hrinda Cristiano Ronaldo, sem nota bene kom aðvífandi bara til þess eins að reyna að mana Rooney upp í frekari vitleysu? Það var mikið traust lagt á Rooney af hálfu ensku þjóðarinnar í ár, og jafnvel enn meira eftir að Owen haltraði meiddur af velli gegn Svíum, en í stað þess að leyfa Peter Crouch, sem hafði ekki brugðist trausti Englendinga svo mikið sem einu sinni, að axla hluta af ábyrgðinni og um leið gera Rooney auðveldara fyrir þarna frammi, þá tók Sven Göran þann stóra bara út úr liðinu algjörlega í síðustu tveimur leikjum og lét þetta allt saman standa og falla með Rooney.

Og á daginn kom að Wonder-Wayne stóð engan veginn undir þessari pressu, þessu áliti ensku þjóðarinnar eða því trausti sem hafði verið lagt á hann. Jú, hann var ekki í fullu leikformi í þessari keppni en hann var heldur ekki nægilega klókur leikmaður til að spila einn frammi, og á endanum hljóp skapið með hann í gönur.

Englendingar eru dottnir úr leik. Allt í lagi með það, mér hefur yfirleitt verið nokk sama um þá. En Gerrard og Carragher klúðruðu vítaspyrnum og verða örugglega hundeltir af fjölmiðlum fyrir vikið, sem er neikvætt fyrir okkur Púllarana. Það neikvæðasta af öllu saman þó er það að Portúgal - og þá sérstaklega Cristiano Ronaldo - eru komnir í undanúrslit. Ég hef sagt það áður og ég segi það aftur, þurfi einhver staðfestingu á því eftir að hafa horft á þessa leiksýningu í dag: PORTÚGALIR ERU LEIÐINLEGASTA FOKKING FÓTBOLTALIÐ Í HEIMINUM!

Cristiano Ronaldo. Luis Figo. Simao Sabrosa. Maniche. Pedro Pauleta. Petit. Tiago Mendes. Helder Postiga. Hugo Viana. Og til að toppa þetta er Luis Boa Morte, einn mesti leikari í enska boltanum, á bekknum hjá þeim.

Er til leiðinlegra fótboltalið í heiminum? Ég held ekki. Og alveg burtséð frá því hvort Frakkar eða Brasilíumenn vinna í kvöld, þá mun ég styðja fyllilega við bakið á sigurliðinu úr þeim leik gegn Portúgal í undanúrslitum. Mér er sama hverjir vinna HM í knattspyrnu, svo lengi sem það er ekki mesta leikaralið í heiminum, Portúgal. Þeir einfaldlega mega ekki vinna þessa keppni!

En já, þið lásuð það fyrst hér: Rooney var óheppinn í dag en Gerrard, Carragher og Lampard ættu að skammast sín. Þannig mun enska pressan fjalla um þennan leik, því að Wayne Rooney gerir aldrei mistök. Er það nokkuð?!?

.: Kristján Atli uppfærði kl. 18:05 | 736 Orð | Flokkur: HM 2006
Ummæli (14)

Það tók ekki langan tíma. Trúður mótsins, Sven Göran Eriksson, tekur af skarið með ummælum sem er hægt að túlka á tvo vegu:

  1. Hann minnist varla á Rooney, enda var þetta ekkert honum að kenna.
  2. "Við æfðum vítaspyrnur svoooooo vel, ég veit ekki hvað þeir voru að hugsa! Hvernig gat þetta klikkað?!?"

Bjáni. Steve McClaren er kannski ekki besti þjálfari í heimi, en hann getur ekki gert verr en SGE með þennan mannskap!

Kristján Atli sendi inn - 01.07.06 18:46 - (Ummæli #1)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.








:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?




Flokkar

Almennt · Auglýsingar · Enska bikarkeppnin · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · HM 2006 · HM Félagsliða · Kannanir · Landslið · Leikmannakaup · Leikmenn · Leikskýrslur · Leikvangur · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Myndbönd · Sjónvarp · Slúður · Topp10 · Um síðuna · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·

Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Aggi

Einar Örn

Hjalti

Kristján Atli

Sigursteinn

Síðustu leikir

·Maccabi Haifa 1 - Liverpool 1
·Sheffield United 1-1 Liverpool
·Liverpool - Chelsea 2-1
·Liverpool 2 - Maccabi Haifa 1
·Mainz 5 - L'pool 0

Síðustu Ummæli

JónH: Ég hef sjaldan eða aldrei æst mig eins m ...[Skoða]
Doddi: Ég var á ættarmóti í dag og þar var glat ...[Skoða]
Mundi: Ítalía eru með leiðinlegasta liðið á HM ...[Skoða]
Sigurjón: Stuðningsmenn Englands geta ekki horfst ...[Skoða]
Árni Jón: Ég veit ekki hvað menn halda eiginleg en ...[Skoða]
Maggigunn: Ekki veit ég til þess að Gillz hafi fund ...[Skoða]
Ásgeir H: skeit upp á bak? Er Gillzenegger byrjaðu ...[Skoða]
HK: Ég hef aldrei sett neitt á þessa síðu se ...[Skoða]
Árni: Ég vil á engann hátt verja Rooney (enda ...[Skoða]
Maggigunn: Wayne Rooney er frábær fótboltamaður. Vi ...[Skoða]

Síðustu færslur

· West Ham á morgun
· Lucas Neill á leiðinni?
· Riðill C!
· Jöfn deild í byrjun ...
· Nýr haus
· Sissoko frá í 2 vikur

Tenglar

Einar :: EOE.is

Kristján Atli.com


NewsNow Liverpool

SKY

Liverpool Echo

BBC

Liverpool (official)

YNWA spjallborð

RAWK spjallborð

Soccernet

The Guardian

Daily Telegraph

Independent

LFC History

Liverpool.is

This Is Anfield

UEFA


Staðan í ensku

Tölfræði í ensku


The Liverpool Way Blog

RAWK blog

Kop Blog




Við notum
Movable Type 3.2

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License