26. júní, 2006
Jæja, ævintýri Ástrala á HM er núna lokið, en Harry Kewell og félagar töpuðu 1-0 fyrir Ítölum í dag.
Leikurinn var skemmtilegur og þrátt fyrir að Ítalir hafi verið sterkari, þá gátu Ástralir klárlega klárað þennan leik. Harry Kewell lék ekkert í leiknum, en hann var meiddur og sást m.a. á hækjum fyrir leikinn. Leiðinlegt fyrir hann og Ástrala.
Leikurinn réðist á fáránlegri vítaspyrnu. Ég hélt að það myndi seint gerast á þessari síðu að ég myndi verja gjörðir Lucas Neill, en að mínu mati var þessi vítaspyrnudómur fáránlegur. Neill renndi sér í tæklingu en náði hvorki í bolta né mann og lá eftir á vellinum. Þegar að Neill lá í jörðinni keyrði Grosso á hann og féll niður í teignum. Víti dæmt og úr því skoraði Totti og sendi Ítala áfram í 8 liða úrslitin þar sem þeir munu annaðhvort spila við Sviss eða Úkraínu.
Uppfært (KAR): Ókei, Ítalir munu mæta Úkraínu í 8-liða úrslitunum eftir að þeir síðarnefndu slógu Svisslendinga út í vítaspyrnukeppni í kvöld. Þeir unnu vítaspyrnukeppnina 3-0, og það þrátt fyrir að Andryi Schevchenko léti verja hjá sér fyrstu spyrnu kvöldsins. Ég held ég tali fyrir hönd allra Liverpool-stuðningsmanna þegar ég spyr: um hvað ætli Sheva hafi verið að hugsa þegar hann steig á punktinn fyrir vítið sitt í kvöld? Hmmmmm … ?

Jerzy, ég vona að þú hafir verið að horfa …