19. júní, 2006
Echo hafa staðfest að Liverpool hafi boðið 6 milljónir punda í Craig Bellamy, leikmann Blackburn. Einsog við höfum fjallað um þá er Bellamy með klausu í samningnum um að hann megi fara til liðs sem bjóði 6 milljónir.
Bellamy er Liverpool aðdáandi og því ættu viðræður við hann ekki að valda neinum vandræðum. Þannig að það er orðið 95% öruggt að Craig Bellamy mun spila í framlínu Liverpool á næsta tímabili.
Bellamy var markahæsti og besti leikmaður Blackburn á síðasta tímabili. Hann skoraði 13 mörk í ensku úrvalsdeildinni og var 8. markahæsti maðurinn í deildinni, með þrem mörkum meira en okkar markahæsti maður, Steven Gerrard. Bellamy er 26 ára gamall Wales búi.
Að mínu mati eru þetta verulega góðar fréttir. Ég vildi miklu frekar sjá Bellamy hjá Liverpool en leikmenn einsog Defoe eða Bent. Helstu vandræði Bellamy voru undir stjórn Graeme Souness, en sá þjálfari gæti rifist við stein, þannig að það er ekki að marka það að mínu mati. Og 6 milljónir punda fyrir leikmann af þessum gæðaflokki á þessum aldri, sem hefur reynslu úr ensku deildinni, er frábært að mínu mati.
Echo halda því líka fram að Liverpool hafi hækkað tilboð sitt í Daniel Alves uppí 10 milljónir punda.