beach
« HM: Sex - Núll!!! | Aðalsíða | HM: Liverpool á bekkinn »

17. júní, 2006
Kuyt mál að klárast?

Samkvæmt Mirror (umfjöllun um greinina hér) þá hafa Liverpool og Feyenoord komist að samkomulagi um að Dirk Kuyt fari til Liverpool fyrir 10 milljónir punda eftir HM. Kosturinn við það að Kuyt hafi ekki spilað mikið á HM er sennielga sá að verðmiðinn á honum hefur ekki rokið uppúr öllu valdi á sama tíma. Ég veit að efasemdir manna hafa aukist vegna þess að Kuyt hefur ekki verið í byrjunarliðinu hjá Hollendingum. En hafa ber í huga að Kuyt er í raun að berjast við van Nilsteroy um stöðuna. Hann kemur síður til greina í stöðurnar sem Robben og van Persie spila. Jafnvel þótt van Nilsterooy sé ljótur og spili með Man U, þá verður að viðurkennast að það eru ekki margir framherja í heiminum, sem slá hann út. Ég hef því ekki áhyggjur af getu Kuyt.


Echo greindu einnig frá því í gær að Liverpool hefði 2 vikur í viðbót til þess að kaupa Craig Bellamy á 6 milljónir punda. Bellamy er með klausu í samningnum um að hann geti farið til liðs sem býður 6 milljónir punda í hann, en sú klása rennur út eftir 2 vikur.

Crouchy, Fowler, Bellamy, Kuyt og kannski Flo-Po. Er þetta málið fyrir næsta tímabil? Mér líst furðu vel á þetta. Held til dæmis að Craig Bellamy gæti verið frábær kostur, þrátt fyrir að fulltaf fólki sé ekki sammála mér. Hann er Liverpool aðdándi og lék frábærlega fyrir Blackburn á síðasta tímabili. Við höfum fengið að kynnast því að það er ekki alltaf sniðugt að kaupa stórstjörnur úr öðrum deildum (Morientes!) og því gæti verið gott að fá minni spámenn, sem hafa sannað sig í ensku deildinni. 6 milljónir punda er ekki mikill peningur fyrir mann í sama klassa og Bellamy. Og þegar hann er kominn til uppáhaldsliðsins síns, þá er ég sannfærður um að hegðun hans verður í lagi.

.: Einar Örn Einarsson uppfærði kl. 13:10 | 307 Orð | Flokkur: Slúður
Ummæli (8)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.








:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?




Flokkar

Almennt · Auglýsingar · Enska bikarkeppnin · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · HM 2006 · HM Félagsliða · Kannanir · Landslið · Leikmannakaup · Leikmenn · Leikskýrslur · Leikvangur · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Myndbönd · Sjónvarp · Slúður · Topp10 · Um síðuna · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·

Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Aggi

Einar Örn

Hjalti

Kristján Atli

Sigursteinn

Síðustu leikir

·Maccabi Haifa 1 - Liverpool 1
·Sheffield United 1-1 Liverpool
·Liverpool - Chelsea 2-1
·Liverpool 2 - Maccabi Haifa 1
·Mainz 5 - L'pool 0

Síðustu Ummæli

petur: Sammála Vargingum.Veit ekkert um Kyut ve ...[Skoða]
villi sveins: Bellamy og Kuyt væru mjög góðir kostir. ...[Skoða]
Vargurinn: PLEASE Kaupum Bellamy.............. Maðu ...[Skoða]
trausti: Fínt. Vitið þið hvað er að frétta í máli ...[Skoða]
Aggi: Mér líst afar vel á að fá Dirk Kuyt hins ...[Skoða]
ace: Mér líst bara vel á þetta ...[Skoða]
Sævar Sig: bara snilli og Dud til AZ Al fyrir 1 mil ...[Skoða]
Hannes: Ég er einmitt búinn að vera að lesa þett ...[Skoða]

Síðustu færslur

· West Ham á morgun
· Lucas Neill á leiðinni?
· Riðill C!
· Jöfn deild í byrjun ...
· Nýr haus
· Sissoko frá í 2 vikur

Tenglar

Einar :: EOE.is

Kristján Atli.com


NewsNow Liverpool

SKY

Liverpool Echo

BBC

Liverpool (official)

YNWA spjallborð

RAWK spjallborð

Soccernet

The Guardian

Daily Telegraph

Independent

LFC History

Liverpool.is

This Is Anfield

UEFA


Staðan í ensku

Tölfræði í ensku


The Liverpool Way Blog

RAWK blog

Kop Blog




Við notum
Movable Type 3.2

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License