beach
« Tógó? | Aðalsíða | HM: Spánverjar í banastuði! »

13. júní, 2006
Daniel Alvés biður um sölu!

alves_asks_transfer.jpg Dagurinn í dag á HM í knattspyrnu olli smávægilegum vonbrigðum, verð ég að viðurkenna. Í fyrsta leiknum vann S-Kórea 2-1 sigur á Tógó sem voru þó yfir 1-0 í hálfleik, og í sanngirni var ekkert sem benti til þess að Kóreumenn gætu náð stigi eða stigum úr þessum leik fyrr en Tógó-menn misstu einn leikmann útaf með rautt spjald. Eftir það gengu Kóreumenn á lagið og lönduðu mikilvægum sigri.

Í öðrum leik dagsins gerðu Frakkar og Svisslendingar svo bitlaust, markalaust og hundleiðinlegt jafntefli í mjög slöppum leik. Svisslendingarnir eru sennilega sáttir við þau úrslit og gætu sigrað í riðlinum, en Frakkar eru í vondum málum verð ég að segja. Þeir fóru í gegnum síðustu Heimsmeistarakeppni án þess að skora mark og urðu neðstir í sínum riðli, og ef þeir taka sig ekki saman í andlitinu fyrir næsta leik verður það aftur niðurstaðan í ár. Það er hreint ótrúlegt að sjá hvernig lið sem skartar Henry, Zidane, Wiltord, Ribery, Vieira, Saha, Trézeguet, Malouda og fleiri álíka sóknarmönnum getur verið svona ótrúlega bitlaust. Ótrúlegt alveg hreint.

Í síðasta leiknum unnu Brasilíumenn svo nauman 1-0 sigur á Króötum, en það var glæsiskot Kaká á 40. mínútu sem skildi liðin að. Brassarnir voru góðir í þessum leik en meira þarf til ef þeir ætla sér alla leið í þessari keppni, á meðan Króatar komu ár sinni vel fyrir borð í þessum leik og voru síst lakari aðilinn. Þeir munu fara langt í þessari keppni líka ef þeir spila áfram svona vel. Að lokum fer ég fram á það að Robinho fái að byrja inná hjá Brasilíumönnum í næsta leik fyrir hinn ótrúlega slaka Ronaldo, sem hreyfði varla á sér rassgatið þær tæpu 70 mínútur sem hann hékk inná vellinum. Robinho gerði meira síðustu 20 mínúturnar en Ronaldo hefði gert í tíu leikjum með þessari frammistöðu. Eða eins og Arnar Björnsson sagði: “Brassar eru líflegri núna, enda eru þeir ekki lengur einum manni færri.”


Það sem mér finnst mest spennandi við daginn eru samt þessar fréttir hér: DANIEL ALVES BIÐUR SEVILLA UM AÐ FÁ AÐ FARA TIL LIVERPOOL!

Jább. Þið lásuð rétt. Alves er búinn að gera upp hug sinn og það er stórliðið í Bítlaborginni sem á hug hans allan. Hann langar að sjá Lennon safnið, hann langar að sigla niður Mersey með kærustunni, hann langar frekar að spila með en á móti Momo Sissoko (ljái honum hver sem vill) og síðast en örugglega ekki síst, hann langar til að vinna með Rafael Benítez. :-)

“We don’t want to sell him but when a player wants to leave you can’t force him to stay. He has told us he likes Liverpool’s offer though he isn’t pressuring us. They have come back to us with a new offer but we have rejected it.”

Sagan segir að Liverpool hafi síðast boðið 8m punda en Sevilla séu enn að bíða eftir 12m punda tilboði, þannig að það ber ekki mikið í milli og maður hlýtur að vera vongóður um að samkomulag náist um verð fljótlega. Og miðað við yfirlýsingu Alves í þessu máli þá ætti ekki að vera mikið mál að semja um kaup og kjör við hann, þannig að ég er bara nokkuð vongóður um að þessi sala verði frágengin á næstu dögum. :-)

Já, og svona rétt í lokin langar mig til að óska Eiði Smára til hamingju með að vera loksins kominn í alvöru lið. Nú er þungu fargi af okkur hinum létt, þar sem við getum nú loksins farið að óska Eiði Smára alls góðs á sínum ferli auk þess sem manni er endanlega frjálst að hata Chelsea af 100% afli. Góðar fréttir! :-)

.: Kristján Atli uppfærði kl. 21:47 | 601 Orð | Flokkur: Slúður
Ummæli (8)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.








:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?




Flokkar

Almennt · Auglýsingar · Enska bikarkeppnin · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · HM 2006 · HM Félagsliða · Kannanir · Landslið · Leikmannakaup · Leikmenn · Leikskýrslur · Leikvangur · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Myndbönd · Sjónvarp · Slúður · Topp10 · Um síðuna · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·

Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Aggi

Einar Örn

Hjalti

Kristján Atli

Sigursteinn

Síðustu leikir

·Maccabi Haifa 1 - Liverpool 1
·Sheffield United 1-1 Liverpool
·Liverpool - Chelsea 2-1
·Liverpool 2 - Maccabi Haifa 1
·Mainz 5 - L'pool 0

Síðustu Ummæli

DaðiS: Neinei, hún verður huglæg. :-) :b ...[Skoða]
eikifr: Nú færist hlutlægnin yfir í spánska bolt ...[Skoða]
DaðiS: Gleðilegast í þessu Eiðs Smára máli er a ...[Skoða]
Hössi: Góðar fréttir með Alves. Er nú ekki bara ...[Skoða]
Doddi: Ég vona að Alves sé á leiðinni til okkar ...[Skoða]
Siggi: Og tad er engin haetta a ad Robinho byrj ...[Skoða]
Siggi: Tad var nu ekkert yfir Makelele ad kvart ...[Skoða]
Rabbi: Frakkarnir eru bara allir orðnir allt of ...[Skoða]

Síðustu færslur

· West Ham á morgun
· Lucas Neill á leiðinni?
· Riðill C!
· Jöfn deild í byrjun ...
· Nýr haus
· Sissoko frá í 2 vikur

Tenglar

Einar :: EOE.is

Kristján Atli.com


NewsNow Liverpool

SKY

Liverpool Echo

BBC

Liverpool (official)

YNWA spjallborð

RAWK spjallborð

Soccernet

The Guardian

Daily Telegraph

Independent

LFC History

Liverpool.is

This Is Anfield

UEFA


Staðan í ensku

Tölfræði í ensku


The Liverpool Way Blog

RAWK blog

Kop Blog




Við notum
Movable Type 3.2

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License