beach
« HM í dag: Holland og Mexíkó | Aðalsíða | HM dagur 4: Socceroooooooooos! »

12. júní, 2006
Hamann hugsanlega til Bolton

hamann_to_wander.jpg Þetta eru ekki beint glænýjar fréttir, þar sem þetta hefur verið rætt á netmiðlunum frá því fyrir helgi, en nú hefur Dietmar Hamann sjálfur staðfest þær sögusagnir að hann sé við það að ganga til liðs við Bolton Wanderers á frjálsri sölu, sem geti hækkað í allt að 500 þúsund punda greiðslu ef hann spilar nógu mikið fyrir Bolton.

Samkvæmt hershöfðingjanum sjálfum er hann þó ekki enn búinn að gera upp við sig hvort hann ætli að taka tilboði Sam Allardyce eða vera áfram hjá Liverpool:

“I’m deciding what’s the best thing to do. My heart is with Liverpool, but obviously I have to consider everything I’ve been told and do what’s right. The decision to sell me has not entirely come as a shock to me, but deciding whether to go or not is very hard for me. I’ll be back in England later this week and that’s when I’ll decide whether to go to Bolton. They’re the only club which have shown any interest. It could still go either way, but now I’ve got to think carefully about what’s best for my future.”

Sem sagt, hann mun ræða við Sam Allardyce þegar hann kemur aftur til Englands í þessari viku og svo taka ákvörðun. Við vitum að Didi hefur heillast af Liverpool-borg og er mjög ráðsettur með fjölskyldu sinni þar (gárungarnir segja að hann sé meira að segja farinn að tala eins og Scouser) svo að það er erfið ákvörðun fyrir hann að yfirgefa Liverpool-liðið. Hvort hann hefur viljað enda ferilinn á Anfield og svo jafnvel færa sig yfir á Melwood í þjálfarastöðu er spurning, en það er allavega stór ákvörðun fyrir hann að fara.

Á móti kemur að Rafa hefur gert Hamann það ljóst að hann mun fá takmörkuð tækifæri með aðalliðinu á næstu leiktíð, þar sem Steven Gerrard færir sig aftur inn á miðja miðjuna og verður því framar honum í goggunarröðinni ásamt Xabi Alonso og Momo Sissoko (og hugsalega nýjum leikmanni?) … þá kemur það líka til að Bolton-liðið er ekki það langt frá Liverpool-borg. Það er ekkert svo langsótt að hann geti spilað fyrir þá án þess að róta allri fjölskyldunni upp frá Liverpool-borg.

Við sjáum hvað verður. Ef Didi ákveður að fara í vikunni mun ég kveðja hann með virktum - hann hefur verið hjá okkur í sex ár og unnið alla titla í boði nema tvo; Úrvalsdeildina og Heimsmeistarakeppni félagsliða. Hann hefur verið frábær þegn félagsins og á okkar virðingu skilda. En við skulum þó bíða með að kveðja hann þangað til það verður ljóst hvort hann fer eða ekki. Við ættum að fá lokasvar fyrir helgi frá manninum sjálfum.

Jæja, HM dagur 4 er að hefjast. Ástralir eiga fyrsta leik og Harry Kewell er á bekknum …

.: Kristján Atli uppfærði kl. 12:27 | 456 Orð | Flokkur: Leikmannakaup
Ummæli (4)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.








:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?




Flokkar

Almennt · Auglýsingar · Enska bikarkeppnin · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · HM 2006 · HM Félagsliða · Kannanir · Landslið · Leikmannakaup · Leikmenn · Leikskýrslur · Leikvangur · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Myndbönd · Sjónvarp · Slúður · Topp10 · Um síðuna · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·

Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Aggi

Einar Örn

Hjalti

Kristján Atli

Sigursteinn

Síðustu leikir

·Maccabi Haifa 1 - Liverpool 1
·Sheffield United 1-1 Liverpool
·Liverpool - Chelsea 2-1
·Liverpool 2 - Maccabi Haifa 1
·Mainz 5 - L'pool 0

Síðustu Ummæli

Davíð Már: Ég ætlaði líka að segja það að Guus Hidd ...[Skoða]
Aggi: þetta er vont mál... ég vona að hann far ...[Skoða]
Hössi: ... þar sem Gerrard færir sig aftur inn ...[Skoða]
Gummi H: Kewell er reyndar í byrjunarliðinu, fram ...[Skoða]

Síðustu færslur

· West Ham á morgun
· Lucas Neill á leiðinni?
· Riðill C!
· Jöfn deild í byrjun ...
· Nýr haus
· Sissoko frá í 2 vikur

Tenglar

Einar :: EOE.is

Kristján Atli.com


NewsNow Liverpool

SKY

Liverpool Echo

BBC

Liverpool (official)

YNWA spjallborð

RAWK spjallborð

Soccernet

The Guardian

Daily Telegraph

Independent

LFC History

Liverpool.is

This Is Anfield

UEFA


Staðan í ensku

Tölfræði í ensku


The Liverpool Way Blog

RAWK blog

Kop Blog




Við notum
Movable Type 3.2

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License