09. júní, 2006
Nokkrar vefsíður hafa í dag haldið því fram að Didi Hamann sé á leið til Bolton. Shanklygates slá þessu uppá síðunni sinni og hafa eftir heimildamanni að Rafa hafi gefið Hamann leyfi til að tala við Bolton um frjálsa sölu.
Rafa er að reyna að kaupa hægri kantmann, sem myndi þýða að Gerrard færði sig inná miðjuna þar sem fyrir eru Momo Sissoko og Xabi Alonso. Hamann er því fjórði maðurinn í röðinni og hann fékk lítið að spila á síðasta tímabili.
Ef þetta er rétt, þá er þetta skiljanleg ákvörðun hjá Hamann, en engu að síður sorgleg fyrir Liverpool. Já, Hamann spilaði lítið fyrir Liverpool á síðasta tímabili, en hann hefur einstakt lag á að koma inn og byrja að stjórna leikjum og róa leikmenn niður. Hans verður sárt saknað, sérstaklega í Evrópuleikjum. Sjáum hvað gerist.
Uppfært (EÖE): Chris Bascombe hjá Echo segir að allt sé í rau klárt með að Didi fari til Bolton en að hann ætli að hugsa málið yfir helgina.
Einnig: Sevilla hafa hafnað boði Liverpool í Alves.