beach
« Ókeypis miði á HM!!! | Aðalsíða | Crouchy og Gerrard með, Carra á bekknum »

09. júní, 2006
HM í dag: Þýskaland og Ekvador unnu

HM í Þýskalandi hófst með háværum hvelli í dag. Í opnunarleik mótsins í ár unnu Þjóðverjar 4-2 sigur á Kosta Ríka í stórskemmtilegum leik, sennilega einhverjum skemmtilegasta opnunarleik í marga áratugi. Það var mikil pressa á heimamönnum sem voru án fyrirliða síns, Michael Ballack, en þetta fór þó vel fyrir þá. Sumir vilja segja að þetta hafi verið lítið annað en skyldusigur fyrir Þjóðverjana en það verður satt best að segjast að þótt það hafi verið klassamunur á þessum tveimur liðum voru þeir alls ekki öruggir með sigur. Jú, þeir skoruðu fjögur mörk í fjarveru Ballack sem er jákvætt en þeir leyfðu Kosta Ríka-mönnum að fá allt of mikið pláss og mikinn tíma með boltann nær allan leikinn að mínu mati.

Og svo sáu allir hversu veik vörnin þeirra er. Ég meina ef Kosta Ríka með Paulo Wanchope sem sinn aðalmann geta afhjúpað þessa vörn heimamanna nokkrum sinnum getið þið ímyndað ykkur hvað Englendingar með Michael Owen, Frakkar með Thierry Henry, Argentínumenn með Hernan Crespo, Ítalíumenn með Luca Toni og Hollendingar með Ruud van Nistelrooy geta gert þeim. Svo ég minnist nú ekki á heimsmeistara Brasilíu sem virðast stundum sækja á allt að átta mönnum í einu og geta snúið nauðvörn í stórsókn á heimsmetahraða.

Með öðrum orðum; góður sigur í dag hjá Þjóðverjum í stórskemmtilegum leik en betur má ef duga skal!

Í seinni leik dagsins unnu Ekvadorar nokkuð óvæntan 2-0 sigur á Pólverjum í Schalke Arena í Gelschenkirchen. Ég verð að viðurkenna að frammistaða Ekvadora kom mér ekki eins mikið á óvart og hún virtist koma þulunum á Sýn í opna skjöldu, en ég var hins vegar virkilega hissa að sjá hversu hrikalega slappir Pólverjarnir voru. Ekvadorar unnu m.a. Brasilíu og Argentínu í undankeppninni í S-Ameríku og voru því sýnd veiði en ekki gefin í þessari keppni, og á daginn kom að þeir eru með feykisterkt lið; líkamlega mjög sterkir, góðir í loftinu, ofurvel skipulagðir og teknískir. Þeir halda boltanum mjög vel innan liðsins og eru mjög yfirvegaðir í öllum sínum aðgerðum. Þjóðverjarnir munu eiga í miklum vandræðum með þá í síðustu umferðinni, en staðan er samt sú að sá leikur gæti verið hreinn úrslitaleikur um sigur í riðlinum.

Pólverjar eru í mjööög slæmum málum eftir daginn í dag. Eftir tapið gegn Ekvador þurfa þeir að gyrða sig strax í brók og nú dugir hreinlega ekkert annað en sigur gegn Þjóðverjum í næstu umferð. Ef þeir tapa fyrir Þjóðverjum og Ekvadorar vinna Kosta Ríka, sem ég geri fastlega ráð fyrir, þá eru þeir á leiðinni heim eftir aðeins tvo leiki. Þetta lið sem olli Englendingum verulegum vandræðum í undankeppninni átti bara aldrei séns í þennan leik; það segir sína sögu að þeir áttu fyrsta skot á mark andstæðinganna á 82. mínútu! Svoleiðis frammistaða fleytir mönnum bara ekki neitt áfram í HM.

Þannig að Ekvador fær þann heiður að vera lið dagsins í mínum bókum, en Pólverjar sitja eftir með sárt ennið og eru fyrstu vonbrigðin í sumar.

Á morgun eru síðan tveir stórleikir og ein skotæfing, eða það ætti allavega að vera svo. Strax upp úr hádeginu er stórleikur Englendinga og Paragvæ, en við munum að sjálfsögðu ræða aðeins um þann leik þar sem okkar menn munu eflaust eitthvað koma við sögu. Svo munu Svíar væntanlega vinna stórsigur á Trínídad & Tóbagó en síðar um kvöldið er stórleikur á milli Fílabeinsstrandarinnar og Argentínu, sem eru í dauðariðlinum ásamt Hollendingum og Serbíu & Svartfjallalandi sem spila á sunnudag.

Sem sagt, tveir flottir leikir í dag og þrír enn flottari á leiðinni á morgun. HM er hafið og ég brosi út að eyrum!

.: Kristján Atli uppfærði kl. 21:27 | 593 Orð | Flokkur: HM 2006
Ummæli (1)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.








:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?




Flokkar

Almennt · Auglýsingar · Enska bikarkeppnin · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · HM 2006 · HM Félagsliða · Kannanir · Landslið · Leikmannakaup · Leikmenn · Leikskýrslur · Leikvangur · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Myndbönd · Sjónvarp · Slúður · Topp10 · Um síðuna · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·

Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Aggi

Einar Örn

Hjalti

Kristján Atli

Sigursteinn

Síðustu leikir

·Maccabi Haifa 1 - Liverpool 1
·Sheffield United 1-1 Liverpool
·Liverpool - Chelsea 2-1
·Liverpool 2 - Maccabi Haifa 1
·Mainz 5 - L'pool 0

Síðustu Ummæli

Doddi: Byrjunarlið Englendinga á móti Paraguyay ...[Skoða]

Síðustu færslur

· West Ham á morgun
· Lucas Neill á leiðinni?
· Riðill C!
· Jöfn deild í byrjun ...
· Nýr haus
· Sissoko frá í 2 vikur

Tenglar

Einar :: EOE.is

Kristján Atli.com


NewsNow Liverpool

SKY

Liverpool Echo

BBC

Liverpool (official)

YNWA spjallborð

RAWK spjallborð

Soccernet

The Guardian

Daily Telegraph

Independent

LFC History

Liverpool.is

This Is Anfield

UEFA


Staðan í ensku

Tölfræði í ensku


The Liverpool Way Blog

RAWK blog

Kop Blog




Við notum
Movable Type 3.2

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License