09. júní, 2006
Samkvæmt spænska íþróttatímaritinu Marca eru Liverpool í góðri stöðu til að landa Alberto Zapater, sem er hægrisinnaður miðjumaður hjá Real Zaragoza. Þessi ungi leikmaður er víst mjög hátt metinn hjá Zaragoza, samkvæmt fréttinni, og þeir hafa gert það að forgangsatriði í sumar að ná undirskrift hans á nýjan fimm ára samning, og er talað um að hann fengi um milljón evrur fyrir hvert tímabil. Hann hefur þó hingað til neitað að skrifa undir og því er talið næsta víst að hann sé að bíða eftir að komast til einhvers stærra liðs. Valencia ku hafa gert áhuga sinn ljósan á honum en nú segja menn að Rafa Benítez sé nálægt því að tryggja sér kauða.
Hann verður 21s árs gamall í næstu viku og er með klausu í samningi sínum sem segir að hann megi fara ef tilboð upp á u.þ.b. 3 milljónir punda berist í hann. Marca halda því fram að Liverpool séu tilbúnir að bjóða þá upphæð og því eigi bara eftir að semja við kauða.
Ég verð að viðurkenna að þótt ég fylgist nokkuð vel með spænska boltanum, og hafi séð Real Zaragoza nokkrum sinnum spila sl. vetur, þá veit ég ekki neitt um leikmanninn. Hvort ég hef séð hann spila eða ekki man ég ekki, en ef Zaragoza-mönnum er svona mikið í mun að halda í hann hlýtur hann að geta eitthvað. Marca er hins vegar talsvert slúðurrit og því tek ég öllum fréttum þaðan með fyrirvara, en það verður spennandi að sjá hvort eitthvað gerist í þessum málum á næstu vikum.
Annars er það í hjálögðum slúðurfréttum að nokkuð áreiðanlegir heimildarmenn á spjallsíðu TLW halda því fram að Daniel Alvés sé nánast búinn að ganga frá samningi við Liverpool og muni skrifa undir og gerður opinber í síðasta lagi á næsta þriðjudag. Þennan leikmann hef ég séð spila, margoft, og ég vona það svo ótrúlega fokking heitt að hann komi að ég ræð mér ekki. Plís, plís, plís láttu þetta vera satt!