01. júní, 2006
Í framhaldi af umræðu gærdagsins, þá virðast Lyon menn vera að íhuga alvarlega að kaupa Djibril Cisse í sumar. Forseti Lyon segir nú:
We will study the situation closely maybe even during the two days break the French team has this weekend.
“He is a player manager] Gerard Houllier likes and Djibril has stated, Lyon could be a destination for him.”
Semsagt, hlutirnir gætu jafnvel gerst núna um helgina!
Cisse segist svo vera tilbúinn að taka á sig launalækkun til að fara til Marseille eða Lyon:
“Financially, you have to make some sacrifices and I’m ready to make them.” “My heart leans to Marseille, but Lyon play in the Champions League and is a more stable club.”
Ég held að við getum allavegana bókað það nokkurn veginn núna að Djibril Cisse hefur spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool.
Svo gætu Arsenal verið í verulegum vandræðum. BBC segir að Arsenal hafi greitt 1 milljón punda til belgíska klúbbsins Beveren, en samstarf á milli þessara liða hefur verið mikið. Ef þetta reynist rétt gæti Arsenal jafnvel átt það á hættu að vera dæmdir útúr Meistaradeildinni á næsta tímabili.