31. maí, 2006
Úffffff!
Andriy Shevchenko skrifaði áðan undir 4 ára samning við Chelsea og við það tilefni tilkynnti Mourinho líka að hann vildi kaupa Roberto Carlos frá Real Madrid. Eftir það ættu Chelsea menn að vera sáttir við kaup sumarsins.
Við bjuggumst svosem við þessu. En athyglisverð eru komment frá Didier Drogba, sem komu fyrr í dag, þar sem Drogba sagði Lyon mönnum að Mourinho ætlaði að byggja liðið í kringum Drogba og Shevchenko. Sem er athyglisvert, þar sem þá þyrfti Jose að breyta 4-5-1 leikaðferðinni sinni. Ætlar hann þá að fara í 4-4-2, eða ætlar hann jafnvel að spila 4-3-3 án hefðbundnu vængmannana sinna, svipað einsog t.d. Barcelona?
Þetta gæti verið svona - 4-4-2:
Cech
Ferreira - Terry - Carvalho - Carlos
Robben - Lampard - Ballack - Cole
Shevchenko - Drogba
Vandamálið við þessa uppstillingu er að þarna er enginn Makalele, sem hefur verið fastamaður hjá Chelsea. Í raun getur Chelsea varla spilað með bara tvo miðjumenn, þar sem maður hefði haldið að allir Makalele, Lampard og Ballack væru pottþéttir í byrjunarliðinu.
Gæti þetta því verið svona - með Ballack enn framar - hæpið, þar sem Ballack mun varla spila í þessari stöðu?
Cech
Ferreira - Terry - Carvalho - Carlos
Lampard - Makalele - Essien
Ballack - Shevchenko - Drogba
eða með Ballack á miðjunni og J.Cole eða Robben frammi
Cech
Ferreira - Terry - Carvalho - Carlos
Lampard - Makalele - Ballack
Robben/Cole- Shevchenko - Drogba
Svona þegar ég hugsa þetta, þá þykir mér þetta einna líklegust af uppstillingunum. Hvernig sem maður reynir að stilla þessu upp, þá er í raun breiddin í þessu Chelsea liði orðin ógnvægleg. Ef við tökum það sem gefið að 4 manna vörnin sé eins, þá hefur Mourinho bara 6 stöður til að raða þessum leikmönnum í lið (að því gefnu að Eiður Smári verði allavegana seldur): Essien, Lampard, Makalele, Ballack, Shevchenko, Drogba, Robben, Wright-Phillips, Duff, J. Cole, Kalou, (Crespo).
Þetta er hreinasta geðveiki. Í hverjum einasta leik verða að minnsta kosti 5 toppklassa miðju- og sóknarmenn ekki inná. Ekki bara góðir leikmenn, heldur leikmenn sem eru fastamenn í landsliðum og kæmust inní flest önnur lið í heimi.
Ef að þetta Chelsea lið smellur saman, þá get ég ekki séð að nokkuð lið í enska boltanum geti stöðvað þetta samansafn af leikmönnum. Von hinna liðanna hlýtur að vera að þetta lið geti ekki smollið saman og að Chelsea hljóti sömu örlög og Real Madrid. Þessi sumarkaup Chelsea bera allavegana ansi sterkan keim af “galacticos” stefnunni hjá Real Madrid.
Annars hljótum við að bjóða Shevchenko velkomin í ensku deildina.
Jerzy biður að heilsa.