beach
« Shevchenko á leið til Chelsea | Aðalsíða | Cisse að fara? »

27. maí, 2006
Frétt vikunnar:

Spænsku slúðurblöðin eru einfaldlega í sérflokki hvað slúðrið varðar, það bara verður að segjast. Í gær birtist eftirfarandi frétt á vefmiðli AS.com, og mér fannst hún svo fyndin að ég ákvað að þýða hana í heild sinni hérna fyrir ykkur (með aðstoð Google, en það er samt merkilegt hvað maður er orðinn læs í spænskunni eftir að Rafa tók við stjórninni ) … hér kemur fréttin:

XABI ALONSO ER TIL SÖLU!

Liverpool þurfa að selja leikmenn til að geta keypt!


Xabi Alonso er enn sem fyrr á óskalista Real Madríd. Liverpool FC þurfa peninga frá leikmannasölu til að geta keypt sér nýja leikmenn í sumar, til að geta keppt við Roman Abramovich á markaðnum, en Chelsea hafa þegar í sumar tryggt sér Michael Ballack og munu nær örugglega kaupa Andriy Schevchenko líka. Stjórnendur Liverpool FC hafa ekki þau fjárráð sem þarf til að geta keypt klassaleikmenn og í Englandi gengur sú saga fjöllunum hærra að allir leikmenn liðsins séu til sölu fyrir rétt verð. Allir nema Steven Gerrard, hinn frábæri fyrirliði liðsins sem framlengdi samning sinn síðasta sumar. Klúbburinn stefnir á að græða eins mikið og hægt er á sölu þeirra leikmanna sem fara, menn vilja alls ekki tapa peningi á verði leikmanna, en hafa þó sett mörkin við að selja aðeins tvo af sínum betri leikmönnum. Hins vegar myndu þeir íhuga að selja Xabi Alonso ef rétt verð bærist í hann. Rafael Benítez hefur beðið klúbbinn um að útvega sér vængmanninn Daniel Alvés auk tveggja framherja í sumar.

Lesist: Gvuð minn góður, Jamie Carragher ER TIL SÖLU!!! :-)

Það er vert að hafa í huga að spænsku blöðin AS og Marca eru vön að vinna óbeina markaðsvinnu fyrir stórlið Real Madríd; það er, þau sjá um að valda leikmanni uggum og freista hans, og svo kemur Madríd með tilboðið sem leikmanninn er farið að langa í. Þeir ku hafa gert þetta líka fyrir um viku síðan með Francesc Fabregas hjá Arsenal.

Svo er bara að sjá hvort að þeir bjóði í Cesc eða Xabi í sumar. Já, eða Carragher … við seljum hann ekki fyrir minna en 50 milljónir punda! :-)

.: Kristján Atli uppfærði kl. 12:25 | 354 Orð | Flokkur: Slúður
Ummæli (5)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.








:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?




Flokkar

Almennt · Auglýsingar · Enska bikarkeppnin · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · HM 2006 · HM Félagsliða · Kannanir · Landslið · Leikmannakaup · Leikmenn · Leikskýrslur · Leikvangur · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Myndbönd · Sjónvarp · Slúður · Topp10 · Um síðuna · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·

Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Aggi

Einar Örn

Hjalti

Kristján Atli

Sigursteinn

Síðustu leikir

·Maccabi Haifa 1 - Liverpool 1
·Sheffield United 1-1 Liverpool
·Liverpool - Chelsea 2-1
·Liverpool 2 - Maccabi Haifa 1
·Mainz 5 - L'pool 0

Síðustu Ummæli

eikifr: Við skulum ekki æsa okkur um of. Þessar ...[Skoða]
einsi kaldi: liv þarf ekki að selja.þeir eru að fá st ...[Skoða]
trausti: já það er um að gera að selja toppleikme ...[Skoða]
Árni: Einmitt !! fyrir kannski 100 millj. fá þ ...[Skoða]
L.Á.: Ég vildi óska þess að Real Madrid félli ...[Skoða]

Síðustu færslur

· West Ham á morgun
· Lucas Neill á leiðinni?
· Riðill C!
· Jöfn deild í byrjun ...
· Nýr haus
· Sissoko frá í 2 vikur

Tenglar

Einar :: EOE.is

Kristján Atli.com


NewsNow Liverpool

SKY

Liverpool Echo

BBC

Liverpool (official)

YNWA spjallborð

RAWK spjallborð

Soccernet

The Guardian

Daily Telegraph

Independent

LFC History

Liverpool.is

This Is Anfield

UEFA


Staðan í ensku

Tölfræði í ensku


The Liverpool Way Blog

RAWK blog

Kop Blog




Við notum
Movable Type 3.2

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License