26. maí, 2006
LEIKMAÐUR ÁRSINS: FERNANDO MORIENTES!

Nei djók.
Það er erfitt að segja til um það hvenær nákvæmlega það gerðist, í vetur, að áhugamenn um knattspyrnu almennt hættu að sleikja skóförin eftir Frank Lampard og áttuðu sig á því sem við Púllararnir höfðum haldið fram lengi, að STEVEN GERRARD væri einfaldlega svo miklu, miklu betri leikmaður. Var það í Istanbúl, þar sem fyrirliðinn okkar gaf tóninn með stórkostlegu marki og sýndi það að hann er leikmaður sem stendur undir pressunni þegar hún er sem mest? Var það þegar hann hélt snakki á lofti með tánum og gaf það svo á Roberto Carlos í Pringles-auglýsingu? Eða var það kannski þegar Lampard hvarf, enn og aftur þegar Chelsea þörfnuðust hans mest, í undanúrslitum FA Bikarsins í vor, þar sem Gerrard var einn þeirra sem fór á kostum? Eða var það þegar hann skoraði mark ársins og gerði nánast allan heiminn agndofa með stórleik sínum í úrslitaleiknum gegn West Ham?
Hvenær sem það var, þá er ljóst að leikmennirnir áttuðu sig á því fyrr en hlutlausir áhugamenn. Þeir kusu víst í kringum áramótin og þá var það Stevie G sem hlaut kosningu þeirra sem leikmaður ársins. Ekki Thierry Henry, ekki Wayne Rooney, ekki John Terry … já og ekki einu sinni “leikmaður númer tvö í heiminum,” Frank Lampard. Það segir mikið um það hvernig þeir sem spila gegn honum tvisvar á ári meta fyrirliðann okkar.
Það segir líka kannski mikið um ofurmennsku hans á knattspyrnuvellinum að ég held að við hér á Liverpoolblogginu höfum ekki fjallað um neinn annan leikmann nokkurs liðs jafn mikið og Stevie G. Ég hugsa að ef við gætum talið færslurnar væru þær sennilega hátt í svipað margar bara um hann og um alla hina leikmenn Liverpool til samans. Og jafnvel þótt við höfum fjallað svona mikið um hann, svona ótrúlega oft, þá þarf yfirleitt lítið til að mig klæji í fingurna og ég hrökkvi inná þessa síðu í leit að nýrri leið til að lýsa því fyrir ykkur lesendunum hversu HROTTALEGA GÓÐUR knattspyrnumaður Steven Gerrard er.
Hvað sem því líður, þá er tilefni til að segja það, skrifa, hrópa ofan af húsþökum og jafnvel syngja það sem oftast: STEVEN GERRARD ER LAAANGBESTUR, og hann er Liverpool-maður í gegn! Stundum er eins og menn gleymi því hversu heppnir þeir eru að njóta snilli hans í okkar tíð og tíma, því þegar börnin okkar og/eða barnabörn vaxa úr grasi munu þau nær örugglega spyrja okkur um Gerrard, ef þau á annað borð hafa áhuga á fótbolta. “Pabbi, hvernig leikmaður var Steven Gerrard? Var hann góður? Skoraði hann þá mikið? Hvernig leit hann út?”
Og við munum brosa og taka okkur góóóóðan tíma í að lýsa honum, eins og gömlum vini sem hefur veitt okkur endalaust margar gleðistundir og góðar minningar. Sem er einmitt það sem hann er.
p.s.
Ef einhver er til í að veðja við mig um að hann hljóti þessi verðlaun Liverpoolbloggsins líka að ári þá er ég til. Hver ætti mögulega að geta hirt þetta af honum?
STIGIN FÉLLU SVO:
1. Steven Gerrard - 12 stig (fullt hús)
2. - 3. Momo Sissoko og Jamie Carragher - 4 stig hvor
EINSTAKLINGSLISTAR:
Einar Örn:
1. Steven Gerrard
2. Momo Sissoko
3. Harry Kewell
Kristján Atli:
1. Steven Gerrard
2. Momo Sissoko
3. Pepe Reina
Hjalti:
1. Steven Gerrard
2. Jamie Carragher
3. Xabi Alonso
Aggi:
1. Steven Gerrard
2. Jamie Carragher
3. Xabi Alonso
Hvert er svo ykkar álit?