23. maí, 2006
Mestu vonbrigðin: Fernando Morientes
Þann 13. janúar 2005 var ég ótrúlega ánægður þegar Fernando Morientes var keyptur frá Real Madrid á 6.3 millj. punda og skrifaði undir 3,5 ára samning (til ársins 2008).
Kaupin á Morientes eru þau stærstu við LFC hefur gert í langan langan tíma ásamt kaupunum á Xabi Alonso.
Rafa keep up the good work!!!!
Aggi sendi inn - 13.01.05 19:41 - (Ummæli #1)
Já ekki hægt að segja annað að ég hafi verið bjartsýnn…
Árið áður hafði Morientes verið hreint út sagt frábær með Monaco í meistaradeildinni og skoraði 9 mörk í 12 leikjum. Hann hafði verið leikmaður hjá Real Madrid síðan 1997, spilað 179 leiki og skorað 72 mörk, og m.a. unnið Meistaradeildina 2000 og 2002 með þeim og tapaði í úrslitum 2004 þá með Monaco. Morientes hefur einnig spilað 43 landsleiki fyrir Spán og skorað í þeim 26 mörk! Þetta allt segir okkur að Liverpool var að kaupa toppklassa framherja til næstu 3ja ára eða hvað?
Þegar Fernando kemur til okkar í janúar 2005 þá var hann ekki í neinu leikformi og var það ljóst að það tæki hann smá tíma að komast í spil form. Hann spilaði sinn fyrsta leik gegn manchester united
á Anfield en gerði lítið til að koma í veg fyrir 0-1 tap þar sem Dudek fór á “kostum”. Síðan skoraði hann gegn Charlton í 2-1 sigri þann 1.febrúar 2005.
Morientes mátti ekki spila með okkur í meistaradeildinni en spilaði þetta tímabil 15 leiki og skoraði 3 mörk, alls ekki frábær byrjun en ég ásamt flestum stuðningsmönnum Liverpool vorum tilbúin að sjá Morientes í almennilegu formi og þegar hann væri búinn að aðlagast enska boltanum sem og Englandi sjálfu. ÚÚÚÚFFFFF!!!
Tímabilið sem núna var að ljúka spilaði Morientes 46 leiki og skoraði 9 mörk… og í heildina hefur hann þá spilað 61 leik og skorað heil 12 mörk. Það er ekki sá Morientes sem ég þekkti. Langt frá því.
Það má vel vera að Morientes geti ennþá spilað í topp deild og skorað búnka af mörkum en ég tel af og frá að það gerist með Liverpool eða í ensku deildinni. MESTU VONBRIGÐIN: Fernando Morientes.
STIGIN FÉLLU SVO:
1. Fernando Morientes - 11 stig
2. Benfica - 5 stig
3. Tapleikir gegn Chelsea í deildinni - 4 stig
EINSTAKLINGSLISTAR:
Aggi:
1. Tapið á heimavelli gegn Chelsea þar sem Hyypia var veikur og leit illa út gegn Drogba. Óþolandi leikur og mér verður beinlínis óglatt að hugsa um þetta.
2. Fernando Morientes. Hann hefur nákvæmlega ekkert getað frá því að hann kom til okkar og ég hef gefið honum of mikinn séns. Hann er búinn og Rafa hlýtur að láta hann fara.
3. Leikirnir gegn Benfica. Við erum betri og ég skil ekki ennþá afhverju við unnum þá ekki. Mikið svekkelsi að láta þá slá okkur út. Var þunglyndur í viku eftir þetta tap og missti áhugann á meistaradeildinni. Hef ekki horft á leik síðann!
Einar Örn
1. Fernando Morientes
2. Benfica
3. Sao Paulo
Hjalti:
1. Fernando Morientes
2. Að sýna það ekki alltaf í leikjum gegn Chelsea að við erum ekki lakara
lið
Kristján Atli:
1. Fernando Morientes. Þarfnast ekki útskýringar.
2. Tapið fyrir Benfica á Anfield.
3. Tapið fyrir Sao Paulo í Tokýó.