23. maí, 2006
Núna eru miklar vangaveltur um það hvaða leikmenn munu koma til félagsins sem og hvaða leikmenn verða seldir. Það er oft gaman að velta því fyrir sér hvaða leikmenn Rafa sé að spá í, hvort fjármagnið sé til staðar og hvað sé hæft í því slúðri sem gengur um á netinu. Síðan hefur maður sjálfur sína skoðun á leikmönnum þ.e. hvort þeir eigi að vera í Liverpool eður ei. Rafa hefur sjálfur sagt að hann vilji ganga frá öllum leikmannakaupum fyrir HM en mótið hefst 9. júní næstkomandi. Hlutir sem hafa áhrif á það hvaða leikmenn koma er t.d. hversu mikla peninga hefur Rafa, hverjir verða seldir og hvaða leikaðferð ætlar Rafa að byggja á næstu árin?
Ef við gefum okkur að t.d. Cissé, Morientes, Kromkamp og Traore séu að fara þá er klárt mál að við þurfum framherja. Það er búið að tengja leikmenn eins og Alves, Aurelio, Pennant, Defoe, Bent og A. Johnson við okkur áður. Síðast í gær neitaði Palace 8 millj. punda boði í A. Johnson og tel ég því engar líkur á því að hann sé að koma til okkar fyrir hærri upphæð en það. Persónulega finnst mér Darren Bent ekki nægilega góður fyrir okkur og ef Defoe er ekki nógu góður fyrir Tottenham af hverju ætti hann að vera það fyrir okkur. Þá vil ég heldur halda Cissé.
En höldum áfram vangaveltunum. Ef Alves, Aurelio og t.d. Pennant koma þá erum við komnir með nokkuð massívan hóp og getum skipt um leikaðferðir auðveldlega. Hins vegar stendur eftir spurningin hvaða framherji kemur?
Liðið gæti t.d. litið svona út: (4-4-2)
Reina
Finnan/Alves - Carragher - Hyypia/Agger - Riise/Aurelio
Garcia/Pennant - Sissoko/Gerrard - Alonso - Kewell/Gonzalez
? - Crouch/Fowler
eða svona: (3-5-2)
Reina
Carragher - Hyypia- Agger/Pauletta/?
Alves - Sissoko - Gerrard - Alonso - Aurelio
? - Crouch/Fowler
Eða svona: (4-3-3)
Reina
Finnan/Alves - Carragher - Hyypiä/Agger - Riise/Aurelio
Gerrard - Momo - Xabi
García/Pennant - Crouch/? - Kewell/Gonzalez
Það eru mörg EF í öllum vangaveltum en út frá þessu þá er það algjört lykilatriði að fá framherja til liðsins. Og hvaða framherjar eru nógu góðir, kosta ekki 50 millj. punda og er raunhæft að koma til okkar (t.d. ekki leikmenn frá manchester united
eða Chelsea).
Ég sé þessa leikmenn sem álitlega kosti:
David Villa, er hjá Valencia og myndi kosta 10-15 millj. punda.
Dirk Kuyt, er hjá Feyenoord og myndi kosta 10-15 millj. punda.
Klaas Jan Huntelaar, er hjá Ajax og myndi kosta 10-15 millj. punda.
Nicolas Anelka, er hjá Fenerbahçe og myndi kosta 5-8 millj. punda.
Þetta eru allt leikmenn sem við ættum að hafa efni á. Hvað Rafa er að hugsa varðandi framherja hjá okkur er erfitt að spá (hann keypti Crouch á 7 millj. punda) en ég gef mér það að hann vilji fá leikmann sem getur spilað einn frammi og hefur eitthvað annað sem Crouch og Fowler t.d. hafa ekki sem er hraði (ekki samt annar Cissé). Auðvitað væri ekki leiðinlegt ef við gætum verið að tala um Torres, Van Nistelrooy, Henry, Eto´o eða Shevchenko en það er einfaldlega óraunhæft.
Þetta eru allt vangaveltur og verð hugmyndir eru bara eitthvað sem ég gef mér. En ef þetta stefnir í þessa átt en ekki Diouf og Diao ævintýri þá er það mín skoðun að við séum á góðri leið með að gera athlögu að titlinum á næsta tímabili.