beach
« Defoe eða Bent | Aðalsíða | Fer Morientes í sumar? »

17. maí, 2006
Arselóna í kvöld!

Jæja, í kvöld er komið að stórleik ársins í Evrópuboltanum, en þá mætast spænsku risarnir í Barcelona og enska stórliðið Arsenal í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í París. Þetta verður vafalítið spennandi leikur og ég vona að liðin standi við gefin loforð og spili þann sóknarbolta sem þeim báðum er eðlislægt. Við Púllararnir sáum vel bæði í fyrra í úrslitum Meistaradeildarinnar og nú um nýliðna helgi hversu skemmtilegir úrslitaleikir geta orðið þegar bæði lið mæta með jákvætt hugarfar til leiks. Það er vonandi að það eigi við í kvöld.

ARSENAL hafa aldrei komist svona langt í Evrópukeppni Meistaraliða eða Meistaradeildinni áður, þetta er fyrsta skiptið sem þeir leika til úrslita. Þar við bætist að þeir eru aðeins þriðja enska liðið á rúmum tuttugu árum til að komast svona langt, en Liverpool unnu keppnina í fyrra og manchester united gerðu það árið 1999. Þar áður fór ekkert enskt lið í úrslit í fimmtán ár, sem er löng fjarvera fyrir svo sterka deild.

Bara svo að menn átti sig á því hvað það er óvenjulegt að tvö mismunandi lið frá Englandi skuli komast í úrslitaleikinn með árs millibili. Í fyrra unnu okkar menn óvæntan sigur gegn sigurstranglegu liði AC Milan, og vitaskuld vonast Arsenal-menn eftir sömu niðurstöðu í kvöld, þar sem fæstir veðja á sigur þeirra.

Hinum megin á vellinum er stórlið BARCELONA, sem margir vilja meina að sé besta félagslið í heiminum í dag. Það má vel vera, en til að ætla að teljast til fremstu liða þarf að standa undir slíkum nafnbótum og vinna stærstu titlana. Barcelona-menn tryggðu sér nýverið sigur í spænsku Úrvalsdeildinni í knattspyrnu, einni erfiðustu og bestu deild heims, annað árið í röð sem er vissulega vottur um styrk liðsins, en til að geta talist með bestu liðum Evrópu þurfa þeir að sigra í Meistaradeildinni líka. Juventus, Bayern München og Chelsea hafa sigrað nokkuð sannfærandi í sínum deildarkeppnum síðustu árin í sínum heimalöndum, en hafa ekki landað Evróputitlinum og því er hér tækifæri fyrir Barcelona-liðið til að setjast á toppinn, eitt liða í Evrópu sem bæði sigrar í sinni erfiðu deild og líka í Evrópu.

Þótt undarlegt megi virðast hafa Börsungar aðeins einu sinni orðið Evrópumeistarar, þrátt fyrir að hafa talsvert oftar en það skartað frábærum knattspyrnuliðum. Þeir hafa þó farið oftar í úrslitaleikinn og skemmst er að minnast 4-0 tapleiksins gegn AC Milan vorið 1993, þegar flestir töldu að hin frábæra sóknarlína Börsunga með nöfn á borð við Romario, Stoichkov, Bakero, Guardiola og Koeman innanborðs myndi rústa varnarsinnuðu liði AC Milan. Það varð þó ekki raunin og sá leikur mun örugglega halda Börsungum á tánum á morgun - þeir vita að allt getur gerst í svona stökum úrslitaleik.

Nú, það sem gerir þennan leik ennþá áhugaverðari er einn leikmaður. Eða öllu frekar, ein spurning: Fer Thierry Henry til Barcelona í sumar eða ekki? Mín skoðun á því máli er einföld; leikurinn í kvöld mun sennilega fara langt með að sannfæra hann á hvorn veginn sem er. En ljóst er að þetta verður allavega stórleikur, og vonandi fáum við frábæra skemmtun þar sem þarna takast á sumir af bestu knattspyrnumönnum veraldar í stærsta leik ársins.

MÍN SPÁ: Ég er að sjálfsögðu ekki hlutlaus, enda hafa Barcelona alltaf verið “hitt liðið” mitt á eftir Liverpool. En alveg hlutlaust þá hef ég einfaldlega meiri trú á mínum mönnum en Arsenal-liðinu. Þótt þetta geti vissulega brugðið til beggja vona þá held ég að Börsungarnir hafi sigur, einfaldlega af því að þeir hafa á að skipa fleiri stórkostlegum sóknarmönnum sem geta valdið skaða. Ef þú nærð að loka á Thierry Henry veikirðu Arsenal-sóknina verulega. Ef þú nærð að loka á Ronaldinho … þarftu samt sem áður að hafa áhyggjur af Larsson, Deco, Giuly, Messi (sem verður með í kvöld) og hinum stórkostlega Samuel Eto’o.

Ég segi að þetta verði jafn og spennandi leikur framan af en að endingu muni Barcelona sigla fram úr og vinna 2-0 sigur, með tveimur mörkum frá hetjum Katalóníubúa, Eto’o og Ronaldinho, á síðustu 20 mínútunum eða svo. Og svo spái ég því hér með að Henry fari til Barcelona í sumar. :-)

.: Kristján Atli uppfærði kl. 06:30 | 674 Orð | Flokkur: Meistaradeild
Ummæli (9)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?





Flokkar

Almennt · Enska bikarkeppnin · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · HM 2006 · HM Félagsliða · Kannanir · Landslið · Leikmannakaup · Leikmenn · Leikskýrslur · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Sjónvarp · Slúður · Topp10 · Um síðuna · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·

Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Einar Örn

Kristján Atli

Aggi

Síðustu leikir

·Liverpool 3 - West Ham 3 (6 - 4 eftir vítaspyrnukeppni)
·Portsmouth 1-3 Liverpool
·Liverpool 3 - Aston Villa 1
·Baros mætir á Anfield á morgun.
·West Ham 1 - Liverpool 2

Síðustu Ummæli

Einar Örn: Ég held að þó að við Kristján Atli höldu ...[Skoða]
L.Á.: Ég held að kjúllarnir í Arsenal hafi ekk ...[Skoða]
Vargurinn: Auðvitað heldur maður með ákveðnum liðum ...[Skoða]
Kiddi Geir: Að sjálfsögðu held ég með Barcelona. Fyr ...[Skoða]
Jón H: Hmmm ....Kristján Atli ..ég hélt að þú v ...[Skoða]
Aggi: Ég held með Barcelona í þessum leik en S ...[Skoða]
Gummi H: Hey, ég held líka með Liverpool, Barca o ...[Skoða]
Guðmundur: Arsenal vinna 4-2 í venjulegum leiktíma. ...[Skoða]
Doddi: Mér hefur alltaf fundist mikið til Krist ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Fer Morientes í sumar?
· Arselóna í kvöld!
· Defoe eða Bent
· Kromkamp í hollenska hópnum
· Jose vill Simao
· Ballack og Chelsea-miðjan "ógurlega" ...

Tenglar

Einar :: EOE.is

Kristján Atli.com


NewsNow Liverpool

SKY

Liverpool Echo

BBC

Liverpool (official)

LFC History

Liverpool.is

This Is Anfield

UEFA


Staðan í ensku

Tölfræði í ensku




Við notum
Movable Type 3.2

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License