beach
« Evrópumeistarar! | Aðalsíða | Alves á leiðinni? »

17. maí, 2006
Barcelona: Evrópumeistarar 2006!

Jæja, stórleik kvöldsins lauk með því að Spánarmeistarar BARCELONA tóku við tigninni Meistarar Evrópu, sem eins og Einar Örn minnti svo hressilega á í síðustu færslu hafði verið okkar titill síðustu fimmtíu og eina vikuna. :-)

Þetta var frekar skrýtinn leikur. Fyrirfram bjuggust flestir við að Börsungar myndu sigra vegna þess að þeir væru einfaldlega betra liðið af tveimur stórgóðum, en menn vissu þó vel að Arsenal gætu tekið þetta. Þetta fór þó öðruvísi en búist var við, heldur betur. Jens Lehmann var rekinn útaf eftir um 20 mínútur og Arsenal-menn máttu þola það að spila einum færri í 70 mínútur. Engu að síður komust þeir yfir og héldu forskotinu allt þar til kortér var eftir af leiknum, en þá gerði varamaðurinn Henke Larsson útslagið fyrir Börsunga og bjó til sigur fyrir þá með tveimur stoðsendingum á fimm mínútna kafla, fyrst fyrir Samuel Eto’o og svo fyrir Luciano Belletti. Sem sagt, Börsungar Evrópumeistarar en það var erfið fæðing, og maður verður eiginlega að segja að þótt betra liðið hafi unnið þá hefðu Arsenal sennilega átt skilið að sigra þennan leik, því þeir voru betri aðilinn fram að brottvísun Lehmann og stóðu sig eins og hetjur eftir það.

Dómgæslan í þessum leik verður eflaust skeggrædd á kaffistofum víðs vegar um heim næstu daga, en Norðmaðurinn Terje Hauge var ekki góður í þessum leik. Til að mynda var hann að mínu mati of fljótur að dæma brot á Lehmann þegar hann var rekinn útaf - góður dómari hefði leyft leiknum að halda áfram, beitt hagnaði, og dæmt svo. Rétt eins og í fyrra þegar Petr Cech braut á Milan Baros og hefði átt að fá rautt spjald og við víti, þá lét dómarinn leikinn halda áfram og við skoruðum mark upp úr hagnaðinum. Í kvöld skoraði Ludovic Giuly algjörlega löglegt mark sem hefði átt að koma Barca 1-0 yfir eftir 20 mínútna leik, en Hauge tók það mark af Börsungum vegna þess að hann dæmdi of snemma.

Og eftir sitja Arsenal-menn og velta þessari eilífu spurningu fyrir sér: Hvað ef? Hvað ef Hauge hefði leyft markinu að standa og haldið Lehmann inná vellinum með gult spjald? Hefðu þeir átt meiri séns 1-0 undir en með fullmannað lið, en þeir gerðu með stöðuna áfram 0-0 og einum færri í 70 mínútur? Þeir fóru langleiðina með að vinna þennan leik einum færri en á endanum vantaði kraftinn til að klára leikinn, enda tekur það toll að vera manni færri. Kannski hefði þeim farnast betur ef mark Giuly hefði fengið að standa. Hver veit?

Svo er það maður þessa leiks að mínu mati, hinn ótrúlegi Thierry Henry. Hann fékk nokkur ágæt tækifæri til að tvöfalda forskot Arsenal í þessum leik en nýtti þau ekki, sem reyndist dýrt þegar Börsungar loks jöfnuðu. Eins og þeir hjá BBC velta fyrir sér: gæti klúður Henrys í stöðunni 1-0 hafa gert út um framtíð hans hjá Arsenal? Það kemur eflaust í ljós á næstu dögum/vikum, en við getum allavega búið okkur undir hið óumflýjanlega. Enska pressan mun ekki ræða mikið annað fyrr en hann tekur ákvörðun af eða á.

En allavega, út frá mínu persónulega sjónarmiði er ég hæstánægður með þessi lok Evróputímabilsins. Ef eitthvað lið átti að taka við krúnunni Meistarar Evrópu af mínum heittelskuðu Liverpool gat ég ekki hugsað mér betra lið en Barcelona. Ég óska öðrum Barca-aðdáendum, sem og sjálfum mér, hjartanlega til hamingju með þetta! :-)

Tímabilið er sem sagt opinberlega á enda og nú er lítið annað að gera en að taka saman það markverðasta. Það munum við hér á blogginu gera næstu daga er við lítum um öxl og sjáum hvað var gott og slæmt við nýafstaðið tímabil hjá liðinu okkar, Liverpool FC.

Þar fyrir utan er ekki mikið til að hlakka til næstu vikurnar. HM í knattspyrnu og slúðurtímabilið, en að öðru leyti er ekki mikið að gerast í knattspyrnuheiminum, er það? :-)

.: Kristján Atli uppfærði kl. 23:19 | 642 Orð | Flokkur: Meistaradeild
Ummæli (4)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?





Flokkar

Almennt · Enska bikarkeppnin · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · HM 2006 · HM Félagsliða · Kannanir · Landslið · Leikmannakaup · Leikmenn · Leikskýrslur · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Sjónvarp · Slúður · Topp10 · Um síðuna · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·

Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Einar Örn

Kristján Atli

Aggi

Síðustu leikir

·Liverpool 3 - West Ham 3 (6 - 4 eftir vítaspyrnukeppni)
·Portsmouth 1-3 Liverpool
·Liverpool 3 - Aston Villa 1
·Baros mætir á Anfield á morgun.
·West Ham 1 - Liverpool 2

Síðustu Ummæli

GOTTI: Ég horfði nú bara á Liverpool - AC Milan ...[Skoða]
Doddi: Frábær úrslit og sanngjarn sigur. Vissul ...[Skoða]
Brúsi: Finnst það nú soldið hart hjá Henry að v ...[Skoða]
Einar Örn: Jammm, ágætis sigur hjá Barca. Reyndar ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Hverjir fara og á hvaða verði?
· 5 farnir
· Alves á leiðinni?
· Barcelona: Evrópumeistarar 2006!
· Evrópumeistarar!
· Fer Morientes í sumar?

Tenglar

Einar :: EOE.is

Kristján Atli.com


NewsNow Liverpool

SKY

Liverpool Echo

BBC

Liverpool (official)

LFC History

Liverpool.is

This Is Anfield

UEFA


Staðan í ensku

Tölfræði í ensku




Við notum
Movable Type 3.2

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License