beach
« Reina og Bolo | Aðalsíða | Liverpool 3 - West Ham 3 (6 - 4 eftir vítaspyrnukeppni) »

12. maí, 2006
West Ham í bikarnum á morgun!

Jæja, þá er komið að því. Á morgun leika okkar menn í úrslitum FA bikarkeppninnar ensku gegn nýliðum West Ham á Millennium Stadium í Cardiff. Þótt West Ham-menn séu nýliðar í Úrvalsdeildinni og Liverpool sé fyrirfram spáð sigri eru Hamrarnir stór klúbbur með flotta sögu og þeir hafa staðið sig rosalega vel í vetur, þannig að það er ljóst að þetta verður einfaldlega hörkuleikur.

Við höfum unnið þá tvisvar nú þegar í vetur; fyrst unnum við 2-0 sigur á slöku West Ham-liði á Anfield í október sl. og svo unnum við þá 2-1 fyrir tveimur vikum síðan eða svo á Upton Park. Þar léku þeir enn verr en á Anfield gegn okkur, ef það var þá hægt. Það er eiginlega skrýtið hvað þeir hafa verið slakir gegn okkur í vetur því þess utan hafa þeir spilað mest allt tímabilið í fantaformi, verið með skemmtilegt, léttleikandi og stórhættulegt lið sem hefur á góðum degi getað unnið hvaða lið sem er og eru búnir að tryggja sér þátttökurétt í Evrópukeppni Félagsliða á næsta vetri, sem er ekki slæmt hjá nýliðum.

Nú, hjá WEST HAM eru margir góðir leikmenn en þó nokkrir sem standa upp úr. Í markinu verður eflaust hinn margreyndi Shaka Hislop en fyrir framan hann eru leikmenn á borð við Anton “litla brósa” Ferdinand, Danny Gabbidon og fyrrum enska landsliðsmanninn Paul Konchesky, sem hefur skorað nokkur gegn Liverpool í gegnum tíðina. Á miðjunni státa þeir mönnum eins og Nigel Reo-Coker, sem hefur verið frábær í vetur, og Yossi Benayoun, hinum snjalla ísraelska leikstjórnanda sem Gérard Houllier reyndi víst að kaupa til Liverpool á sínum tíma. Frammi er svo öldungurinn Teddy Sheringham ásamt þeim Marlon Harewood og Dean Ashton. Ashton á þó í einhverjum meiðslavandræðum, en skv. nýjustu fréttum gátu hvorki hann né vængmaðurinn Matthew Etherington æft með Hömrunum í Cardiff í dag.

Hjá okkar mönnum hefur Rafa Benítez úr nær fullu liði á að skipa. Xabi Alonso meiddist um síðustu helgi en ætti skv. nýjustu fréttum að vera heill fyrir leikinn á morgun. Þá eru þeir Robbie Fowler (ólöglegur), Luis García (í banni) og Bolo Zenden (meiddur) einu leikmennirnir sem munu missa af þessum leik, ef mig misminnir ekki. Ég hef pælt svolítið vandlega í þessu síðustu daga og ég get ekki séð annað en að Rafa sé í mikilli klemmu varðandi liðsval. Það vilja náttúrulega allir taka þátt í stórleik ársins hjá félaginu og miðað við liðsval Rafa í vetur held ég að maður geti gert sér í hugarlund hvaða leikmenn hefja leik á morgun.

Nema frammi. Þar stendur Rafa nefnilega frammi fyrir örlitlum vanda; hann þarf að velja á milli þess að nota það sóknarpar sem hann hefur oftast treyst í vetur eða að brjóta það upp fyrir heitasta framherjann sinn um þessar mundir. Þetta myndi útleggjast einhvern veginn svona á morgun:

REINA

FINNAN - CARRAGHER - HYYPIÄ - RIIISE

GERRARD - SISSOKO - ALONSO - KEWELL

FM/DC - CROUCH

Með öðrum orðum, hvort á hann að velja Fernando Morientes eða Djibril Cissé frammi við hlið enska landsliðsmannsins Peter Crouch? García er í banni, Fowler er ólöglegur þannig að valið stendur á milli þessa þriggja, og af þeim tel ég að Crouch sé pottþéttur byrjunarmaður. Sjálfur hallast ég að því að hann noti Cissé, einfaldlega af því að hann skoraði tvö gegn Hömrunum fyrir tveimur vikum og þeir eru því eðlilega skíthræddir við hann. Þá á hann alltaf Morientes inn af bekknum ef hitt gengur ekki upp, og við vitum vel að Morientes kemur með betra hugarfar til leiks sem varamaður heldur en hinn sífúli Cissé.

MÍN SPÁ: Eins og oft er með bikarleiki þorir maður varla að spá, því þetta getur farið á alla vegu. Okkar menn þykja líklegri fyrir leikinn en eins og við kynntumst sjálfir í Meistaradeildinni í fyrra getur það oft verið lítilmagnanum í hag. West Ham-liðið er skemmtilegt og getur á góðum degi unnið okkar menn hæglega, en þó hallast ég að því að ef Rafa nær að samstilla liðið og menn mæta rétt stemmdir ættu okkar menn að landa þessu.

Fyrst og fremst vonast ég til að fá skemmtilegan leik og hraðan sóknarbolta á báða bóga, og því spái ég 3-1 sigri fyrir Liverpool eftir að West Ham komast óvænt yfir. Þá spái ég því að það muni knattspyrnumenn í takkaskóm skora mörkin. :-)

Annars vona ég bara að þetta verði skemmtilegur leikur og að við getum fagnað í leikslok, um leið og við förum brosandi inn í sumarmánuðina og slúðrið sem er vafalaust framundan. ÁFRAM LIVERPOOL!!! smile

.: Kristján Atli uppfærði kl. 14:17 | 747 Orð | Flokkur: Enska bikarkeppnin
Ummæli (12)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?





Flokkar

Almennt · Enska bikarkeppnin · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · HM 2006 · HM Félagsliða · Kannanir · Landslið · Leikmannakaup · Leikmenn · Leikskýrslur · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Sjónvarp · Slúður · Topp10 · Um síðuna · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·

Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Einar Örn

Kristján Atli

Aggi

Síðustu leikir

·Liverpool 3 - West Ham 3 (6 - 4 eftir vítaspyrnukeppni)
·Portsmouth 1-3 Liverpool
·Liverpool 3 - Aston Villa 1
·Baros mætir á Anfield á morgun.
·West Ham 1 - Liverpool 2

Síðustu Ummæli

Nafni: Verði þér að góður Kristján R. Reina ger ...[Skoða]
Kristján R: úfff.. þvílíkur leikur... já ég er búinn ...[Skoða]
Stjáni: Byrjaðu að éta nafni :-) ...[Skoða]
Kristján R: Vá hvað reina brjargaði rassinum sínum u ...[Skoða]
Kristján R: Vá hvað reina brjargaði rassinum sínum u ...[Skoða]
trausti: Rólegur með Reina. Ekki hans leikur en h ...[Skoða]
Kristján R: Þvílík jöfnunar markkkkkkkkkk en reina. ...[Skoða]
Kristján R: Jæja 2-1 í háfleik... og þvílik mistök.. ...[Skoða]
JayMatteo: Góðan daginn púllarar nær og fjær. Þega ...[Skoða]
einsi kaldi: þegar Liv spilaði við Portsmouth um síðu ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Liverpool 3 - West Ham 3 (6 - 4 eftir vítaspyrnukeppni)
· West Ham í bikarnum á morgun!
· Reina og Bolo
· Tveir dagar í úrslitaleikinn
· Slúðurvika
· Sumarskap

Tenglar

Einar :: EOE.is

Kristján Atli.com


NewsNow Liverpool

SKY

Liverpool Echo

BBC

Liverpool (official)

LFC History

Liverpool.is

This Is Anfield

UEFA


Staðan í ensku

Tölfræði í ensku




Við notum
Movable Type 3.2

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License