01. maí, 2006
Jæja, einn leikur eftir af deildarkeppninni, og það þýðir að slúðurtímabilið er að fara á fullt. Fyrir utan slúður um að við séum að kaupa Ludovic Giuly og/eða Craig Bellamy, sem eru tvær háværustu sögurnar þessa dagana, er þó ein sem vekur athygli mína.
Sú saga gengur nefnilega fjöllunum hærra í Bítlaborginni þessa dagana að hinn hollenski Jan Kromkamp sé á förum frá Liverpool. Sögurnar benda í ýmsar áttir; sumir segja að hann verði notaður sem gjaldmiðill upp í Dirk Kuyt, aðrir að hann verði seldur til Ajax fyrir 3m punda. Að mínu mati er hið fyrra bara rugl, þar sem það hefur lengi verið talin aðalástæða þess að Kuyt vilji helst koma til Liverpool í sumar að hann og Kromkamp eru víst perluvinir. Finnst því ólíklegt að þeir myndu samþykkja að fara í sitt hvora áttina með þessum hætti.
Hitt er þó í þessu máli að þetta virðist stafa af því sem markvörðurinn Pepe Reina skrifaði í leikjaprógrammið fyrir undanúrslitaleikinn í FA bikarnum gegn Chelsea. Þá var hann að skrifa um hópinn og nýju leikmennina sérstaklega, og hafði þessi orð um Kromkamp:
“I know him less than the others, he is a quiet and shy person, but he is doing well and improving all the time. He’s more comfortable now than he was at Villareal. We just need to give him a little bit more time. When he’s on the coach he loves to talk on his phone - he’s always on the phone”
Lesist: Kromkamp er ekki að gera sitt til að falla inn í hópinn og kynnast samherjum sínum, sem er jú einmitt ástæðan fyrir því að Josemi var seldur frá liðinu.
Ég er ekki viss um að ég vilji missa Kromkamp. Mér finnst hann hafa aðlagast enskri knattspyrnu fljótt og er núna fullfær um að keppa á fullu við Steve Finnan um hægri bakvarðarstöðuna, auk þess sem hann getur leyst af á hægri kantinum þegar við lendum í vandræðum. Fótboltalega séð hefur hann verið miklu stöðugri en Josemi var og býður upp á meira. Þá er hann ungur og verður í eldlínunni með Hollendingum á HM í sumar, sem gæti gefið honum enn meira sjálfstraust fyrir næsta tímabil. Að lokum verð ég að viðurkenna að vinskapur hans við Dirk Kuyt sakar ekki, ég væri frekar til í að sjá þá báða á Anfield í haust en að sjá þá með öðrum liðum.
Samt er ómögulegt að spá hvað Rafa er að hugsa. Slúðrið er bara það - slúður - og því ber að taka með fyrirvara. Ef þetta reynist rétt þá grætur maður kannski ekki yfir þeim missi, og ef hann á í virkilegum vandræðum með að aðlagast lífinu og liðinu utan vallar skil ég fyllilega ef Rafa lætur hann fara. En fótboltalega séð vill ég endilega halda honum, og kannski hefur Reina rétt fyrir sér; kannski þarf hann bara aðeins meiri tíma.
Nú, ef að vandamálið er að hann nái ekki að aðlagast liðinu, er þá ekki kjörráð að kaupa bara besta vin hans til liðsins?