27. apríl, 2006
Jæja, fimmtudagur og mig langar til að byrja daginn á því að óska stuðningsmönnum Arsenal og Barcelona til hamingju með að hafa náð svona langt. Við vorum í úrslitunum fyrir ári síðan og ég gleymi þeim degi aldrei, hvað þá menn eins og Einar sem fóru út á leikinn. Þannig að ég sé ekkert því til fyrirstöðu að við samgleðjumst með öðrum sem fá að njóta þess sama.
Eftir að Liverpool duttu út í 16-liða úrslitunum sagði ég strax að draumaleikurinn í París hlyti að vera leikur á milli Barcelona og Arsenal, þar sem það væru tvö skemmtilegustu liðin með bestu sóknartilburðina í keppninni, og það hefur nú ræst. Þannig að ég get ekki ímyndað mér annað en að hlutlausir boltafíklar hlakki mikið til leiksins. Ég svindla náttúrulega smá, er og verð alltaf Liverpool-aðdáandi fyrst og fremst en Barcelona hafa alltaf verið líka í miklu uppáhaldi hjá mér. Þannig að ég hlakka til að styðja mitt lið í úrslitunum, og þótt ég hafi viljað sjá Arsenal ná í draumaúrslitaleikinn er ég hér með hættur að styðja þá á nokkurn hátt. Vonandi flengja Roni og félagar þá!
Annars er mál dagsins þetta vesen með Luis García og Hayden Mullins. Þeir fengu eins og menn vita báðir rautt spjald í gær undir lok leiksins, og BBC hefur núna staðfest að báðir klúbbar muni áfrýja, því ef báðir dómarnir standa fá þeir báðir beint þriggja leikja bann og missa því af úrslitaleiknum í FA bikarnum eftir tvær og hálfa viku.
Ég sá þetta atvik og hef horft á það endursýnt og ég verð að segja að ég hefði viljað sjá þá báða sleppa með gult spjald. Jújú, García virðist reyna að þrykkja olnboganum að Mullins og Mullins ýtir við García (en það var saklausara en það sýndist, þar sem García fór frekar auðveldlega niður). En þetta atvik var samt svo mikil ekki-frétt að mér fannst skrýtið að sjá þá báða fjúka. Það var hálfgerð lognmolla yfir leiknum á þessum tímapunkti og þetta var svona meira eins og örlítill pirringur hjá báðum. En það gæti reynst dýrt.
Maður vonar að enska knattspyrnusambandið sjái að sér og minnki bönnin niður í tvo leiki á hvorn. Fyrir því væru góðar ástæður - þá væru báðir að fá sína refsingu en næðu samt úrslitaleiknum. Svo er það eins og Alan Pardew sagði, að það ætti að virka báðum liðum í hag að það er ekki eins og andstæðingar þeirra í bikarúrslitunum þurfi að tapa á því að liðin fái sína leikmenn inn fyrir þann leik. Ef þeir fá að vera með eru bæði lið að græða.
Ég vona allavega að þeir fái að vera með. Það er einhver ömurlegasta tilfinning í heimi að sitja eftir í svona stórleik vegna stundarpirrings, en það er það sem þeir Mullins og García eru að sjá fram á núna.