19. apríl, 2006
Ef maður horfir á úrslit leikjanna í deildinni á þessu tímabili og sérstaklega úrslitin í kringum Chelsea leikina okkar, þá kemur í ljós ákveðið mynstur.
Ef við tökum fyrst næstu leiki á undan 2-0 tapleiknum í London, þá var prógrammið svona:
- Birmingham (J)
- Portsmouth (S) - en mjög slappur leikur
- manchester united
(T)
Semsagt, fyrir tapleikinn á Stamford Bridge höfðum við leikið illa 3 leiki í röð og við fylgdum því svo eftir með hryllilegum tapleik gegn Charlton.
Fyrir 1-4 leikinn á Anfield voru úrslitin í deildinni svona:
- Birmingham (J)
- manchester united
(J)
- Tottenham (J)
Semsagt, þá vorum við líka búnir að leika illa 3 leiki í röð.
Chelsea mættu okkur því tvisvar í deildinni í vetur og í bæði skiptin vorum við í mikilli lægð. Í bæði skiptin vorum við að leika illa og okkur gekk illa að skora mörk.
Núna erum við í hins vegar í fyrsta skipti á leiktíðinni að fara inní Chelsea leik eftir sigurhrinu og með sjálfstraustið í botni. Það er vonandi að það hafi jákvæð áhrif á laugardaginn.
Chelsea er hins vegar líka á góðu skriði eftir að hafa hikstað smá. Þeir hafa núna unnið 3 leiki í röð nokkuð sannfærandi, West Ham 4-1, Bolton 2-0 og Everton 2-0.
Við erum hins vegar búin að vinna 7 leiki í röð (6 í deild og 1 í bikar) eftir hörmungina gegn Arsenal á Highbury. Það hefur aðeins slaknað á markaskoruninni í síðustu tveimur leikjum og af síðustu 4 mörkum hefur Robbie Fowler skorað 3. Þeir, sem eru líklegastir til að spila í framlínunni á laugardaginn eru sennilega Peter Crouch og Luis Garcia. Crouch hefur ekki skorað í síðustu 3 leikjum (var hvíldur í síðasta leik - þannig 2 leikir án marks), en Luis Garcia skoraði síðast gegn Everton. Við verðum að treysta því að framherjarnir okkar verði í formi, því Liverpool menn verða að nýta færin vel gegn Chelsea.
Chelsea liðið getur refsað harkalega ef okkar menn gera mistök fyrir framan markið þeirra. En ég er sannfærður að ef liðið leikur vel og ef framherjarnir okkar standa sig, þá getum við klárlega unnið þetta Chelsea lið.