15. apríl, 2006
Á morgun mæta okkar menn Blackburn á Ewood Park. Leikurinn hefst klukkan 13.30 og er ljóst að við ramman reip verður að draga þar sem mótherjar okkar eru í harðri baráttu um Evrópusæti.
Leikurinn á morgun átti að fara fram í dag, daginn sem sautján ár eru liðin frá Hillsborough, en Blackburn færðu leikinn góðfúslega fyrir okkur.
Blackburn er með 54 stig í sjötta sæti deildarinnar, jafn mörg stig og Arsenal sem er í því fimmta. Liðið hefur komið einna mest á óvart og hafa eiginlega komið bakdyramegin upp töfluna. Ég áttaði mig í það minnsta varla á því í hversu góðri stöðu liðið er fyrr en nýverið!
Þeirra hættulegasti maður, að mínu mati, er kappi sem hefur verið bendlaður eilítið við Liverpool undanfarið. Það er Craig Bellamy sem hefur skorað þrettán mörk í deildinni á tímabilinu, fimm meira en okkar markahæsti maður í deildinni, Steven Gerrard. Bellamy hefur skorað sautján mörk í öllum keppnum.
Í pistli sínum talar Ian Rush um að hann vilji sjá Bellamy til Liverpool. Pistilinn má lesa í íslenskri þýðingu hér. Ég ætla ekki að fjalla um það hvort Bellamy eigi að koma í sumar núna þar sem þetta er upphitun fyrir leikinn, en hann er klárlega maður sem þarf að hafa góðar gætur á, og leikmaður sem margir vilja fá til liðsins og margir ekki!
Florent Sinama Pongolle er í láni hjá Blackburn en má ekki spila vegna samkomulags á milli liðanna. Þá er Tugay tæpur hjá þeim en hjá okkur vantar bara þá Agger og Bolo. Ég spái byrjunarliðinu á þessa leið:
Byrjunarliðið á morgun?
Reina
Finnan - Hyypiä - Carragher - Riise
Sissoko - Alonso
Gerrard - Garcia - Kewell
Crouch
Semsagt, 4-2-3-1. Eins og Rafa hefur þó bent á nýverið, þá er það ekki leikkerfið (tölurnar) sem segja allt. Auðvitað gæti Cisse líka bara byrjað á kantinum og Fowler frammi með Crouch eða jafnvel Morientes. En einhvernveginn verður maður að spá liðinu!
Mín spá: Ég held að þetta verði ekki auðunninn leikur. Ég ætla að spá 1-2 sigri okkar manna, en hallast þó jafnvel að því að jafntefli gæti orðið niðurstaðan. Þriðja sætið í deildinni verður niðurstaðan okkar í ár, við getum nánast alveg bókað það. Þrátt fyrir að manchester united
hafi gert jafntefli við lélegasta lið ensku úrvalsdeildarinnar þá eru þeir ekki að fara að tapa mikið meira held ég. Svo er langt niður í Tottenham í fjórða sætinu.
Það sem er því mál málanna það sem eftir er af tímabilinu er FA bikarinn þar sem við mætum, jú enn einu sinni, Chelsea. Sigur í FA bikarnum og þriðja sætið í deildinni tel ég vera mjög ásættanlegt tímabil…. en fyrst, Blackburn!
YNWA