12. apríl, 2006
Þá er búið að nefna þá sex, sem koma til greina í kjöri á leikmanni ársins í ensku deildinni. Þeir eru:
- Joe Cole - Chelsea
- Thierry Henry - Arsenal
- John Terry - Chelsea
- Steven Gerrard - Liverpool
- Wayne Rooney - Man U
- Frank Lampard - Chelsea
Ok, semsagt Steven Gerrard er tilnefndur, enda hann búinn að eiga frábært tímabil með Liverpool.
Wayne Rooney og Thierry Henry eiga svo sannarlega skilið að vera þarna líka, enda hafa þeir verið tveir bestu framherjarnir í ensku deildinni. Joe Cole hefur líka leikið virkilega vel og á skilið að vera þarna.
John Terry á líka skilið að vera þarna. Hann er undirstaðan í Chelsea vörninni, sem er undirstaðan fyrir góðu gengi Chelsea. En ef að John Terry er á listanum, AF HVERJU Í ANDSKOTANUM ER JAMIE CARRAGHER EKKI TILNEFNDUR? AF HVERJU? Ég er ekki að segja að John Terry eigi ekki að vera tilnefndur. Alls ekki. Hann er einn af tveim bestu varnamönnunum í enska boltanum í vetur. En af hverju er hinn ekki tilnefndur?
Hverjum hefði þá átt að sleppa af listanum spyr þá einhver. Ég skal segja þér: FRANK FOKKING LAMPARD! Hvað hefur hann getað á seinni hluta tímabilsins? Nákvæmlega ekkert. Ég skal vel viðurkenna að í fyrra var hann besti miðjumaður á Englandi og ég held að ég hafi m.a. talað um það á þessari síðu. En í ár hefur hann hins vegar versnað svo mikið að blaðamenn á Englandi eru farnir að gagnrýna hann, sem var áður óhugsandi.
Semsagt, ég er sáttur við að 5 af 6 leikmönnum á listanum. Ég er sáttur við að þarna séu 2 frá Chelsea og 1 frá hinum toppliðunum. En ég er EKKI sáttur við að Lampard sé þarna umfram Jamie Carragher.
(annars vekur athygli að þarna er aðeins einn “útlendingur”
Uppfært (EÖE): Ég gleymdi að setja inn tilnefningar fyrir efnilegustu leikmennina. Þeir eru:
- Darren Bent
- Wayne Rooney
- Cristiano Ronaldo
- Anton Ferdinand
- Aaron Lennon
- Cesc Fabregas
Ég spyr þá í framhaldi, HVAR Í ANDSKOTANUM ER MOMO? Bent er fæddur 84 en Momo 85.