12. apríl, 2006
Daily Mirror heldur því fram í blaðinu í morgun að Raúl sé ofarlega á óskalistanum hjá Rafa Benitez. hinn 29 ára gamli Spánverji er náttúrulega klárlega einn af bestu framherjum í heimi síðustu árin, en hann hefur ekki leikið svo vel á þessu tímabili.
Mirror telja að hugsanlegt sé að Real Madrid láti Raúl fara fyrir lítinn sem engan pening í sumar og að Rafa sé aðeins tilbúinn að fá Raúl til liðsins ef það er tilfellið. Mirror menn vitna í “source close to Benitez”, sem segir:
“Rafa hasn’t the cash to pay silly money for Raul and if he makes any sort of move now then it will become unfeasible. But it does seem Real may be looking to change, with Martin thinking the club can’t go forward unless it takes some major steps.
“And if that means they’re ready to let him go for nothing or a nominal fee, as a mark of respect, to clear the way for new players, Rafa could be able to entice him to Liverpool.”
Já, ég veit að við erum örlítið brennd af fyrrverandi Real Madrid framherjum. En í Guðanna bænum, við erum að tala um RAÚL!