07. apríl, 2006

Jæja, frívikan er búin og nú snúum við okkur aftur að alvörumálum. Um helgina er heil umferð í ensku Úrvalsdeildinni, nokkrir leikir á morgun og nokkrir á sunnudag. Á sunnudaginn taka okkar menn á móti Bolton Wanderers í leik sem er mikilvægur fyrir bæði lið, en þó kannski frekar fyrir Sam Allardyce og hans menn. Eins og við höfum komið inná áður eru okkar menn í frekar skrýtinni stöðu akkúrrat núna; þrjárfimm umferðir eftir, fimm stigum á eftir manchester united
og þeir eiga leik til góða en tólf stigum á undan Tottenham, sem eiga líka leik til góða.
Með öðrum orðum, þá er allt útlit fyrir að við sitjum pikkfastir í þriðja sætinu í vetur - það þarf allavega mikið að gerast til að við förum upp eða niður um sæti í deildinni áður en tímabilið er úti.
Bolton-menn hins vegar eru í bullandi baráttu. Þeir sitja eins og er í sjöunda sætinu, nítján stigum á eftir okkur en með tvo leiki til góða. Fyrir ofan þá eru Blackburn (fimm stigum ofar, einum leik meira), Arsenal (fimm stigum ofar, jafnmarga leiki) og Tottenham (sjö stigum ofar, einum leik meira). Fyrir neðan þá eru svo Wigan og West Ham, einu og tveimur stigum á eftir Bolton en bæði þau lið hafa leikið einum leik fleiri.
Með öðrum orðum, þá eru Bolton í ágætis séns á að lauma sér inn í Meistaradeildarsæti fyrir næsta haust, en þeir gætu líka endað um miðja deild án þátttökurétts í Evrópukeppni félagsliða.
Hvað byrjunarlið okkar manna varðar er erfitt um að segja. Fyrirliðinn Steven Gerrard kemur aftur inn í liðið en spurningin er bara, á kostnað hvers? Á að fórna Djibril Cissé, sem átti kjörleik á kantinum gegn W.B.A.? Eða á að fórna Fowler úr framlínunni og færa Cissé þangað?
Það er allavega ljóst að einhver verður að víkja, og ég spái því að Rafa muni láta bæði Fowler og Cissé víkja, og að þeir Gerrard og Luis García komi inní liðið sem yrði þá einhvern veginn svona:
Reina
Finnan - Carragher - Hyypiä - Riise
Gerrard - Sissoko - Alonso - Kewell
García - Crouch
Ég er ekki frá því að þetta sé okkar sterkasta lið í dag. Það rífst allavega enginn um þessa vörn og þessa miðju hjá okkur, og Crouch virðist eiga sína stöðu skuldlaust frammi. En þótt Fowler, Cissé og Morientes hafi allir fundið skotskóna að undanförnu og átt góða leiki finnst mér Luis García hafa komið sérlega vel inn í liðið við hlið Crouch, og sérstaklega virðast þeir tveir duglegir að vinna saman og finna hvorn annan. Þannig að ég spái því að García fái kallið og verði í liðinu á sunnudag.
Og já, ég veit að það er mynd af Diouf efst í þessari upphitun. Ég ætlaði upphaflega að fjalla sérstaklega um hann í byrjun þessarar upphitunar, en bara það að sjá mynd af honum í Bolton-treyju varð til þess að svekkelsið og pirringurinn útaf honum gaus upp í mér aftur. Ég horfði á upprifjun úr síðustu HM-keppni um daginn og það var hreinlega sárt að sjá hversu ógeðslega góður Dioufy getur verið þegar hann bara nennir því. Verst að hann nennti því allt of sjaldan fyrir okkur, og kaus svo að hegða sér eins og fáviti þegar hann var búinn að yfirgefa klúbbinn. En hann verður með á sunnudaginn, sennilega frá byrjun, og vill örugglega helst af öllu skora mark gegn okkur. Vonandi gengur það ekki eftir.
MÍN SPÁ: Eins og Bolton-mönnum er einum lagið verður þetta mjög harður, þéttur og krappur leikur. Það verður mikið um stöðubaráttu og stympingar, og ég mæli með því að menn búist ekki við einhverri flæðandi súperknattspyrnu af hálfu okkar manna. Bolton-lið Allardyce einfaldlega leyfir mönnum ekki að komast upp með slíka fásinnu. Falleg knattspyrna, pppfffffftttt!
Í fyrra þurftum við að bíða fram á 91. mínútu eftir sigurmarkinu, sem Igor Biscan skoraði með flottum skalla eftir góða fyrirgjöf Djimi Traoré. Í ár myndi ég alveg þiggja sömu niðurstöðu, og því ætla ég að segja að Liverpool vinni 1-0 baráttusigur í þessum slag.
Áfram Liverpool, og góða helgi góðir hálsar!