05. apríl, 2006
Miðvikudagur. Meistaradeildin er í fullum gangi, en okkar menn eru því miður ekki með í henni. Í gær duttu prófessorinn og lærisveinar hans út gegn AC Milan eftir 3-1 tap á Ítalíu. Lyon-liðar voru betri aðilinn í leiknum og nákvæmlega fjórum mínútum frá því að komast áfram á marki skoruðu á útivelli, en Schevchenko kálaði þeim með stoðsendingu og marki í blálokin. Gérard Houllier getur þó huggað sig við að hans menn voru betri en stórlið Milan, og ég bara trúi ekki öðru en að Lyon komist lengra en í 8-liða úrslitin á næsta ári. Þeirra tími hlýtur að koma að lokum.
Nú, í hinum leiknum vann spænska liðið Villareal 1-0 sigur á Internazionale frá Ítalíu og komst áfram á marki skoruðu á útivelli. Þannig að nú er Adriano frjálst að semja við Li… nei, bíddu við. Annars datt mér svolítið annað í hug eftir úrslit gærkvöldsins:
Í fyrra fóru Liverpool alla leið í úrslitaleik Meistaradeildarinnar, og unnu. Í fyrra var Josemi í herbúðum Liverpool.
Í ár yfirgaf Josemi Liverpool í janúar, en þegar hann fór hafði Liverpool ekki enn tapað leik í Meistaradeildinni. Hann fór, og við töpuðum tvisvar fyrir Benfica, liði sem við hefðum átt að vinna.
Josemi gengur til liðs við Villareal, og þeir eru öllum að óvörum komnir í undanúrslit Meistaradeildarinnar. Hann er ekki gjaldgengur í keppnina í ár, en svo virðist sem bara nærvera hans geti gert kraftaverk.
Vill ekki einhver hringja í José Mourinho og segja honum hvern hann þarf að kaupa til að vinna Meistaradeildina?
Annars er lítið um Liverpool-tengdar fréttir þessa dagana. Fernando Morientes er góður félagi og segist vona að Robbie Fowler fái framlengdan samning. Hvort sem þessi ummæli hans eru tilraun til að koma sér í mjúkinn hjá stuðningsmönnum eða ekki veit ég ekki, en Len “Pepe Reina hefur spilað illa í vetur” Capeling hjá Daily Post telur að það muni ekkert bjarga Nando úr þessu. Og ekki Cissé heldur, víst. Og Len Capeling veit sko ALLT …
Annars langar mig bara til að óska Arsenal-mönnum góðs gengis í leiknum við gömlu konuna í kvöld. Eins lengi og Juventus koma mér ekki stórkostlega mikið á óvart (þ.e. með því að spila skemmtilega knattspyrnu) þá mun ég vona að Nallararnir klári dæmið, og setji upp sannkallaðan underdog-slag í undanúrslitunum við spútniklið Villareal. Svo vona ég að sjálfsögðu að mínir menn í Barcelona klári Benfica. Þá fengjum við spútnikslag og risaslag í undanúrslitunum, og því pottþétt eitt spútniklið í úrslitaleiknum gegn stórliði á heimsmælikvarða.
Arsenal gegn Barcelona? Það gæti orðið fróðlegt maíkvöld …