02. apríl, 2006
Fowler hefur skorað meira en Dalglish.
Með markinu í gær gegn WBA hefur Robbie Fowler tekið framúr King Kenny Dalglish yfir markahæstu leikmenn Liverpool frá upphafi. Robbie hefur núna skorað 173 mörk en markahæsti leikmaður félagsins er að sjálfsögðu Ian Rush með 346 mörk (geri aðrir betur).
Robbie hefur núna skorað 2 mörk eftir að hann kom tilbaka til félagsins, gegn Fulham og í gær gegn WBA. Ennfremur hefur hann skorað tvö önnur mörk sem dæmd hafa verið af honum. Ég tel miklar líkur á því að félagið bjóði Robbie framlengingu á samningnum hans en hann á að renna út í lok þessa tímabils. Hann virðist vera að komast í gott form og meiðslalaus Robbie getur klárlega hjálpað félaginu á næstu árum enda eingungis 30 ára gamall drengurinn.
10 markahæstu leikmenn Liverpool frá upphafi:
- Ian Rush - 346
- Roger Hunt - 286
- Gordon Hodgson - 241
- Billy Liddell - 228
- Robbie Fowler - 173
- Kenny Dalglish - 172
- Michael Owen - 158
- Harry Chambers - 151
- Jack Parkinson - 130
- Sam Raybould - 128