01. apríl, 2006
Ég fékk sendan tölvupóst seint í gærkvöld þar sem mér var bent á ákveðinn spjallþráð á YNWA.tv síðunni. Þar er mjög áreiðanlegur notandi, sem er persónulegur vinur Steven Gerrard og hefur skúbbað mjög mörgum fréttum löngu áður en þær hafa borist til fjölmiðla (Xabi Alonso, salan á Danny Murphy og Michael Owen, Morientes, Pepe Reina og Daniel Agger) og þessi ákveðni notandi mætti þarna inn í gær með mjög spennandi frétt.
Svo virðist sem Liverpool gætu vissulega verið að fara að versla sér framherja í sumar, framherja af þeim heimsklassa sem ég er að vonast eftir að við kaupum. En ég verð að viðurkenna að þegar ég sá hvern viðkomandi var að tala um brá mér heldur mikið. Hann vill meina að hinn brasilíski ADRIANO hjá Internazionale sé með tilboð frá Liverpool á borðinu og sé að íhuga hvort hann eigi að taka því.
Internazionale myndu náttúrulega aldrei vilja selja þennan snilling, en svo virðist sem þeir ráði því ekki alveg. Adriano framlengdi við þá samning sinn síðastliðið sumar og þá var sú klausa sett í samning hans að ef Inter ekki næðu einu af tveimur efstu sætunum í Serie A í vetur og ef þeir kæmust ekki í undanúrslit Meistaradeildarinnar, þá mætti Adriano fara ef þeir fengju tilboð upp á 15 milljónir punda.
Inter eru ekki að fara að velta Juventus og AC Milan úr sessi í Serie A og þrátt fyrir að hafa unnið 2-1 heimasigur á Villareal í Meistaradeildinni í síðustu viku eru þeir langt frá því að vera öruggir inn í undanúrslitin. Samkvæmt þessum áreiðanlega heimildarmanni á YNWA.tv er Adriano með tilboð frá Liverpool á borðinu, samning og kaup fyrir 15 milljónir punda, og ætlar að taka ákvörðun um það eftir leikinn gegn Villareal á Spáni.
Þannig að ef Internazionale detta út gegn Villareal þykir frekar líklegt að hann taki tilboði Liverpool, sem myndi víst gera hann að launahæsta leikmanni liðsins ásamt Steven Gerrard og Fernando Morientes. Auk þess að koma með þessar upplýsingar upplýsti heimildarmaðurinn okkur um það að Steven Gerrard er einn þeirra sem kemur að þessari mögulegu sölu, sem og Fernando Morientes og Fabio Aurelio, bakvörðurinn brasilíski sem er góðvinur Adriano og er búinn að samþykkja að koma sjálfur til Liverpool í sumar.
Þessir þrír aðilar ku allir liggja í símanum þessa dagana til Ítalíu, þar sem þeir tala stíft við Adriano (sem talar góða ensku) og reyna að sannfæra kappann um að koma til Anfield.
Umræðuna getið þið lesið á þessum spjallþræði.