29. mars, 2006
Miðvikudagur. Mig langar til að byrja á því að óska Arsenal-stuðningsmönnum til hamingju með sannarlega stórkostlegan sigur á Juventus í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í gær. Fyrir leikinn var ég eiginlega búinn að sættast við þá staðreynd að Liverpool væru dottnir út, og ákveða í kjölfarið að styðja þau lið sem mér þættu skemmtilegust í keppninni. Ég er að sjálfsögðu Barca-maður og vona að þeir vinni nú loksins Evrópu í annað sinn, en þess fyrir utan ætlaði ég bara að halda með þeim liðum sem spila skemmtilegan fótbolta.
Sem þýddi það að ég hélt fyllilega með Arsenal gegn Juventus í gær. Það er orðið erfiðara að bera kala til Nallaranna eftir að Wenger skipti leikmönnum eins og Martin Keown og Lee Dixon út fyrir leikmenn á borð við Kolo Touré og Francesc Fabregas, og að mínu mati er þetta Arsenal-lið í dag bara einfaldlega best spilandi liðið á Englandi. Þeir hafa gengið í gegnum ákveðin hamskipti í vetur - ungir leikmenn hafa þurft að þroskast hratt vegna meiðsla reyndari manna, og brottfarar Patrick Vieira - en nú sér fyrir endann á því og í ljós er að koma stórkostlega spilandi lið sem er bæði efnilegt og líka gott í núinu. Og í gær kom það endanlega í ljós - ef við tókum Juventus í kennslustund fyrir ári síðan á Anfield veit ég ekki hvað þetta var í gær. Þetta ítalska stórlið er að rúlla upp Serie A í heimalandinu en í gær litu þeir út eins og Stoke City eða Millwall gegn stórkostlegu liði Arsenal. Þetta var sigur fótboltans, til hamingju Arsenal-menn. Ég vona að þið komist áfram og við fáum að sjá Arsenal og Barca mætast í undanúrslitunum (og svo Barcelona og Lyon í úrslitunum, eftir að Lyon leggur Milan í kvöld og Villareal í undanúrslitum).
Annars er lítið af Liverpool að frétta í dag, fyrir utan fjárfestingartíðindin sem Einar Örn fjallaði um hér fyrr í dag. En fyrir þá sem vilja drepa tímann er ekki úr vegi að benda á nokkrar greinar sem eru fimm mínútna virði:
Arseblog.com - grein dagsins í dag. Arsenal-aðdáandi sem fer oft á völlinn bloggar í svipuðum stíl og við hér gerum um Liverpool-liðið okkar. Uppáhalds fótboltabloggsíðan mín og sú sem ég hafði að fyrirmynd þegar ég ákvað að stofna þessa síðu með Einari. Orð hans um frammistöðu sinna manna í gær gegn Juve eru frábær og hann á bara skilið að gleðjast svona yfir þessu.
“Blame the benches!”. Englendingurinn Phil Ball, sem staðsettur er í Madrídarborg og skrifar pistla um spænska knattspyrnu, veltir fyrir sér falli galactico-liðs Real Madríd og fær skemmtilegt innlegg frá bandaríska grínistanum Drew Carey.
THE RED REVIVAL - en svo mun næsta bók meistara Paul Tomkins heita. Hann fjallar hér um hvernig titillinn á væntanlegri bók hans var valinn og hvernig gengið hefur að skrifa hana, auk þess sem hann fjallar lauslega um gengi Liverpool í vetur. Bókin hans sem kom út síðasta sumar, Golden Past, Red Future, var frábær og ég mæli með henni við alla. Hlakka til að lesa næstu bók, og vonandi skrifar hann svo enn eina eftir ár þar sem hann fjallar um hvernig Rafa rak smiðshöggið á verk sitt og gerði okkur að Englandsmeisturum.
Stephen Warnock í ítarlegu viðtali við opinberu síðuna. Hjalti var búinn að benda á þetta viðtal í morgun og það er fróðlegt að lesa þetta viðtal við Warnock.
Benítez og leikaðferðin. Kristján Atli skrifar á íslenska Liverpool Bloggið ítarlega færslu um það hvernig leikaðferðir Rafael Benítez eru uppbyggðar, og hvað það er sem “sérfræðingar” íslensks sjónvarps eru að misskilja.
Hafið það gott í dag og endilega hugsið til gamla próferssorsins í Liverpool, Gérard Houllier. Hann þarf að taka á honum stóra sínum í kvöld gegn AC Milan..