beach
« Að hafa áhrif á dómara | Aðalsíða | Benítez og leikaðferðin »

27. mars, 2006
Nýr fjárfestir?

Spænski marmilljónamæringur segir við Daily Express í dag að hann vilji gera Liverpool að einu besta liði í heimi. Maðurinn heitir Juan Villalonga og talið er að viðræður hafi þegar átt sér stað um komu hans inn í klúbbinn. “‘I want Liverpool to change from a domestically focused club into a global force,” sagði hann við Daily Express.

Juan Villalonga er fæddur 8. apríl 1953 og var stjórnarformaður Telefónica, stærsta símafyrirtækis Spánar. Hann tók við fyrirtækinu árið 1996 en var neyddur til að segja af sér árið 2000 eftir ásakanir um innherjaviðskipti. Þá var hann búinn að fimmfalda verðmæti fyrirtækisins og fjárhagslega framtíð sína um leið. Árið 2001 var hann síðan skipaður í stjórn Univision, sem er “US Spanish-language television network,” ég kann ekki við að þýða þetta :-)

Það þekkja allir spænsku áhrifin innan sem utan vallar hjá Liverpool. Nú er spurning hvort þau færist inn í stjórnina líka? Við höfum áður verið orðaðir við menn á borð við Thaksin Shinawatra, forsætisráðherra Taílands en ekkert hefur heyrst af þessum málum í langan tíma.

Mig dreymir enn um að fá verulega sterkan fjárfesti inn í klúbbinn til að tryggja nýjan og glæsilegan leikvang, og eins og nokkra dýra leikmenn til að geta keppt við Chelsea um Englandsmeistaratitilinn….


UPPFÆRT (Hjalti) -
Nú er talað um að Liverpool viti vel af áhuga Villalonga en að málið sé komið eitthvað á veg virðist vera bull og vitleysa. Það útilokar þó ekki að eitthvað gerist í framtíðinni en það er talið ólíklegt.

Árið 2004 réð Liverpool fyritækið Hawkpoint, en fjármálaráðgjafafyritækið hefur enn ekki fundið réttu fjárfestana. Steve Morgan, innfæddur Púllari ásamt bandaríkjamanninum Robert Kraft hafa einnig verið að skoða Liverpool og heimsótti Rick Parry meðal annars Kraft fjölskylduna til Bandaríkjanna, en sagði að það hefði aðeins verið kurteisisheimsókn. Kraft á líka New England Patriots, ameríska ruðningsliðið.

Samkvæmt BBC er leitin að mögulegum fjárfestum í fullum gangi.

.: Hjalti uppfærði kl. 10:38 | 312 Orð | Flokkur: Liverpool
Ummæli (5)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.








:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?




Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Aggi

Einar Örn

Hjalti

Kristján Atli

Sigursteinn

Síðustu leikir

·Charlton 0-3 Liverpool
·L'pool 4 - Fulham 0
·Galatasaray 3 - L'pool 2
·Wigan 0-4 Liverpool
·L'pool 0 - P'mouth 0

Leit:

Síðustu Ummæli

Haddi Thor: One Tree Hill og Pimp My Ride?!!! Hverni ...[Skoða]
Krissi: Það þarf vart að taka það fram að Steve ...[Skoða]
eikifr: Sko mér finnst þessi gaur vera einhver " ...[Skoða]
Arnar: Sammála L.Á, ég vil ekki sjá einhverja ú ...[Skoða]
L.Á: HAHA, Hann lítur út eins og the evil fat ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Peningar í janúar?
· Arsenal á morgun!
· Sunnudagspælingar
· Charlton 0-3 Liverpool
· Byrjunarliðið gegn Charlton
· Charlton á morgun

Tenglar

Einar :: EOE.is

Kristján Atli.com


NewsNow Liverpool

SKY

Liverpool Echo

BBC

Liverpool (official)

YNWA spjallborð

RAWK spjallborð

Soccernet

The Guardian

Daily Telegraph

Independent

LFC History

Liverpool.is

This Is Anfield

UEFA


Staðan í ensku

Tölfræði í ensku


The Liverpool Way Blog

RAWK blog

Kop Blog

Flokkar

Almennt · Auglýsingar · Enska bikarkeppnin · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · HM 2006 · HM Félagsliða · Kannanir · Landslið · Leikmannakaup · Leikmenn · Leikskýrslur · Leikvangur · Liðsuppstilling · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Myndbönd · Sjónvarp · Slúður · Topp10 · Um síðuna · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·




Við notum
Movable Type 3.33

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License