23. mars, 2006
Í kvöld gerðu Middlesbrough og Charlton 0-0 jafntefli og þurfa því að mætast aftur til að úrskurða það hvort þeirra fer í undanúrslitin. Engu að síður verður dregið í hádeginu á morgun, og eru eftirfarandi lið í pottinum:
LIVERPOOL
Chelsea
West Ham
Charlton/M’boro
Nú spyr ég: eiga menn sér einhverja óskamótherja?
Ég á mér óskamótherja: Charlton. Einfaldlega af því að við höfum tapað fyrir þeim á útivelli í vetur, og svo gerðum við bara 0-0 jafntefli á Anfield þrátt fyrir ótrúlega yfirburði. Ef Rafa skuldaði Birmingham rasskell þá skuldar hann Charlton-mönnum einn slíkan líka. Mig langar í Charlton.
Auðvitað horfa menn samt til Chelsea - hvernig er annað hægt? Síðan Mourinho og Benítez tóku við þessum tveimur klúbbum höfum við mætt þeim níu sinnum á einu og hálfu ári, í þremur mismunandi keppnum! En mig langar ekki til að mæta þeim, allavega ekki strax, einfaldlega af því að mig langar í úrslitaleik og okkar menn eiga betri líkur á því gegn einu af hinum þremur liðunum. Ef við mætum Chelsea í úrslitaleiknum sjálfum mun ég ekkert óttast, heldur bara hlakka til þess leiks, en mér þætti það frekar súrt ef þau myndu mætast í undanúrslitunum.
Mig langar í Charlton. En ykkur?