22. mars, 2006
SkySports greindi frá því í gærkvöldi að Liverpool væri gott sem búið að ganga frá samningi við Arelio en hann er laus undan samningi hjá Valencia í sumar. Aurelio var bæði UEFA meistari og spánskur undir stjórn Rafa hjá Valencia.
Hann er vinstri bakvörður/wing back og hefur einnig spilað á kantinum hjá Valencia. Kemur frá Brasilíu og verður 27 ára gamall í sept.
Ef af þessu verður (sem ég vona) þá verður hann fyrsti Brassinn til að spila með LFC og næsta ljóst að tími Traore er búinn hjá félaginu.
Hérna á þessar síðu er hægt að sjá tölfræðina hjá honum á ferlinum: Fabio Aurelio.
Uppfært (EÖE) 11.05: Umboðsmaður Aurelio staðfestir við Sky að viðræður séu í gangi. Umboðsmaðurinn segir:
“The contacts are open with Liverpool and things are going well, but still the operation is not closed,”