beach
« Lið helgarinnar! | Aðalsíða | Cisse á leið til Tottenham? »

20. mars, 2006
Birmingham á morgun í bikarnum

2604105.jpgJæja, eftir að okkar menn hafa fengið HEILAN DAG í hvíld, þá eigum við að spila við Birmingham á morgun í 8 liða úrslitum í FA bikarnum. Þessi umferð spilast hálf skringilega, þar sem það er einn leikur á dag þessa viku. Þessir leiki eru framundan:

Í dag: Man City - West Ham
Þriðjudag: Birmingham - Liverpool
Miðvikudag: Chelsea - Newcastle
Fimmtudag: Charlton - Middlesboro.

Þannig að Man City, Liverpool, West Ham fá 1 dags hvíld, Newcastle, Chelsea, Birmingham - 2 daga hvíld & Charlton - Middlesboro - 4 daga hvíld

Þetta er furðuleg niður-röðun. Ég get til dæmis ekki skilið hvernig Liverpool fær bara 1 dags hvíld á meðan Birmingham fær tvo daga, sérstaklega ef tekið er mið af því að Liverpool hefur lengið langflesta leiki af öllum liðum í enska boltanum og sennilega allri Evrópu á þessu ári.

En það er vonandi að það hafi ekki mikil áhrif á okkar menn á morgun. Robbie Fowler getur ekki spilað og Rafa sagðist hafa stillt upp liðinu gegn Newcastle með Birmingham leikinn í huga, þannig að ég tippa á að hann stilli upp sama kerfi og gegn Newcastle með eftirfarandi breytingum:

Reina

Carragher - Hyypiä - Agger
Finnan                    Warnock
Gerrard - Alonso
Kewell          Cisse
Crouch

Semsagt, Finnan inn fyrir Kromkamp og Alonso inn fyrir Hamann. En ég er samt alls ekki viss. Gæti alveg verið að Didi yrði áfram í liðinu, en hann var verulega sterkur um helgina. Svo fannst mér Kromkamp vera að leika vel í þessari stöðu og vera hættulegri fram á við, þannig að það er aldrei að vita. Tel að Kewell, Crouch og Cisse verði áfram þarna frammi. Gæti líka verið hægt að spila Garcia í stöðunni hans Cisse ef að Rafa vill refsa honum fyrir fíflalætin í gær.

Þetta Birmingham lið ætti að vera létt. Liðið er í 18. sæti deildarinnar, með jafnmörg stig og Portsmouth og einungis Sunderland hefur fengið færri stig en Birmingham. Þeir töpuðu fyrir Tottenham um helgina á heimavelli. Þeir hafa tapað 8 af 15 heimaleikjum í deildinni og menn einsog David Dunn og Muzzy Izzet spila ekki með á þessu tímabili. Semsagt, þeir eru í rugli.

Eeeeeeeeeeeen…

Birmingham er eina enska liðið, sem að Rafael Benitez hefur ekki enn tekist að vinna síðan hann tók við Liverpool. Finnst ykkur það ekki magnað?

Við höfum spilað 4 sinnum við liðið, gert tvö jafntefli og tapað tvisvar. Ég hef ekki staðið upp eftir einn Birmingham leik án þess að vera brjálaður í skapinu. Núna síðast þegar að Xabi Alonso gaf þeim eitt stig með því að skora sjálfsmark á síðustu mínútunum á Anfield.

Semsagt, þetta er vandræðalið fyrir Liverpool, en á morgun fáum við kjörið tækifæri til að laga það. Það er vonandi að það takist.

Mín spá: Ef að við leikum eðlilega, þá eigum við að vinna þetta lið. Það er ekki nokkur spurning. Ég segi 0-2 sigur

.: Einar Örn Einarsson uppfærði kl. 14:53 | 475 Orð | Flokkur: Upphitun
Ummæli (13)

Já, það ert bara þú.

Einar Örn sendi inn - 20.03.06 19:24 - (Ummæli #7)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?





Flokkar

Almennt · Enska bikarkeppnin · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · HM Félagsliða · Landslið · Leikmannakaup · Leikmenn · Leikskýrslur · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Sjónvarp · Slúður · Topp10 · Um síðuna · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·

Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Einar Örn

Kristján Atli

Aggi

Síðustu leikir

·Newcastle 1-3 Liverpool
·L'pool 5 - Fulham 1
·Arsenal - Liverpool 2-1
·L'pool 0 - Benfica 2
·L'pool 0 - Charlton 0

Síðustu Ummæli

Aggi: Ég tel þetta líklegt byrjunarlið hjá okk ...[Skoða]
eikifr: Þessir ensku fjölmiðlar hugsa stundum of ...[Skoða]
Ólafur: Þeir Guardian menn setja Fowler sem líkl ...[Skoða]
Andri: Já, við tökum þennan leik, ekki spurning ...[Skoða]
Bjarki Breiðfjörð: HAha Sigurbergur þetta er bara þú. Þeir ...[Skoða]
Snorri: Bara þú kallinn minn. Það þarf nokkra ga ...[Skoða]
Einar Örn: Já, það ert bara þú. ...[Skoða]
Sigurbergur: Er það bara ég eða er tími Hyypia og Ham ...[Skoða]
Kristján Atli: Það ert bara þú! :-) Nei ég held a ...[Skoða]
Snorri: Er það bara ég, eða er Didi Hamann eins ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Cisse á leið til Tottenham?
· Birmingham á morgun í bikarnum
· Lið helgarinnar!
· Newcastle 1-3 Liverpool
· Liðið gegn Newcastle!
· Gonzalez í beinni á SÝN!

Tenglar

Einar :: EOE.is

Kristján Atli.com


NewsNow Liverpool

SKY

Liverpool Echo

BBC

Liverpool (official)

LFC History

Liverpool.is

This Is Anfield

UEFA


Staðan í ensku

Tölfræði í ensku




Við notum
Movable Type 3.2

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License