beach
« Rafa: Af hverju ætti ég að vilja fara? | Aðalsíða | Staðan í deildinni »

18. mars, 2006
Newcastle á morgun!

Á annan í jólum mættu okkar menn Newcastle á Anfield í Liverpoolborg og unnu verðskuldaðan 2-0 sigur. Peter Crouch og Steven Gerrard skoruðu mörkin þann daginn í leik þar sem öll augu beindust að framherja Newcastle, Michael Owen.

Á morgun verður Owen þó fjarri góðu gamni þegar Newcastle-menn taka á móti Liverpool á sínum heimavelli í leik sem skiptir talsvert miklu fyrir bæði lið. Newcastle eru í tólfta sæti með 39 stig og eygja enn von um að komast í Evrópukeppni á næsta tímabili, en til þess að það gerist þurfa þeir að halda áfram því stuði sem hafa verið í undanfarið. Eins og flestir vita var Graeme Souness látinn taka poka sinn seint í janúar - og þótt fyrr hefði verið - og við tóku þeir Glenn Roeder og Alan Shearer sem tímabundnir stjórar. Það gæti þó alveg verið að þeir verði ráðnir til fulls tíma í sumar, því síðan þeir tóku við hefur liðið unnið hvern einasta leik sem þeir hafa spilað, ef frá er talið tapið gegn manchester united á Old Trafford fyrir viku.

Þannig að þótt United hafi sýnt okkur um síðustu helgi að það eigi að vera hægur leikur að yfirspila þetta Newcastle-lið, þá eru þeir samt líklegir til afreka á morgun, að mínu mati. Þeir unnu okkur á St James’ Park í fyrra og leika alltaf betur á heimavelli, fyrir framan áhorfendur sína sem eru þeir næstbestu í Englandi. :-)

Okkar menn unnu náttúrulega stórsigur á Fulham í miðri viku og vonar maður að það sé upphafið á miklu stuði milli dagsins í dag og loka tímabilsins. En það verður að taka einn leik í einu, eins og Rafa segir alltaf, og það mikilvægasta er að byrja á morgun með því að sigra Newcastle.

Ég held að Rafa stilli upp eftirtöldu liði í leiknum á morgun:

Reina

Finnan - Carragher - Hyypiä - Traoré

Gerrard - Alonso - Hamann - Kewell

Crouch - Morientes

Með öðrum orðum, þá spái ég þremur breytingum frá því í síðasta leik. Sami Hyypiä hefur tekið út sína hvíld og kemur á ný inn í liðið, en þótt ég væri alveg til í að sjá Agger áfram í liðinu þar sem hann spilaði vel á miðvikudag myndi mér líða betur ef Sami væri á staðnum til að díla við Alan Shearer, sérstaklega í skallaeinvígjunum.

Þá held ég að Rafa muni verðlauna Cissé fyrir góða innkomu sína (og tvær hálf-stoðsendingar) á miðvikudag með því að setja hann á kantinn á morgun. Endurskoðað: Eins og Einar Örn bendir á í athugasemdum, og ég var búinn að steingleyma, þá er Xabi Alonso kominn í liðið að nýju á morgun eftir leikbann og verður því væntanlega á miðjunni á kostnað Cissé, og Gerrard færir sig út á kantinn. :-)

Frammi verður Morientes í liðinu áfram eftir markið sitt og þótt það geti vel farið svo að Fowler verði áfram með honum, þá held ég að Rafa kjósi frekar að nota Crouch á útivellinum, og eiga Fowler þá til góða ef þörf er á.

MÍN SPÁ: Þetta leggst ágætlega í mig, en Newcastle eru erfitt lið og langt því frá að ég hafi einhverja sigurtilfinningu. Ég spái fyrst og fremst opnum og skemmtilegum leik, þar sem bæði lið sækja til sigurs og það verður hart barist. Þetta er svona týpískur leikur sem gæti brugðið til beggja vona, en ég ætla að spá þessu 2-1 fyrir Liverpool. Við sjáum til hvort ég hef rétt fyrir mér. :-)

Áfram Liverpool! YNWA!

.: Kristján Atli uppfærði kl. 15:18 | 575 Orð | Flokkur: Upphitun
Ummæli (6)

Af hverju enginn Xabi?

Einar Örn sendi inn - 18.03.06 17:01 - (Ummæli #3)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?





Flokkar

Almennt · Enska bikarkeppnin · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · HM Félagsliða · Landslið · Leikmannakaup · Leikmenn · Leikskýrslur · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Sjónvarp · Slúður · Topp10 · Um síðuna · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·

Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Einar Örn

Kristján Atli

Aggi

Síðustu leikir

·L'pool 5 - Fulham 1
·Arsenal - Liverpool 2-1
·L'pool 0 - Benfica 2
·L'pool 0 - Charlton 0
·Liverpool 1-0 Manchester City

Síðustu Ummæli

Stjáni: Er einhver ástæða til að breyta sigurli ...[Skoða]
Aggi: Þetta verður erfiður leikur... en ég von ...[Skoða]
Kristján Atli: Hey já **SHJITT** maður!!! Búinn að lag ...[Skoða]
Einar Örn: Af hverju enginn Xabi? ...[Skoða]
Kristján Atli: Rafa virðist ekki sjá Cissé sem sóknarma ...[Skoða]
Geiri: Hvernig er hægt að verðlauna sóknarmann ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Gonzalez í beinni á SÝN!
· Staðan í deildinni
· Newcastle á morgun!
· Rafa: Af hverju ætti ég að vilja fara?
· Torres
· Ferðasaga

Tenglar

Einar :: EOE.is

Kristján Atli.com


NewsNow Liverpool

SKY

Liverpool Echo

BBC

Liverpool (official)

LFC History

Liverpool.is

This Is Anfield

UEFA


Staðan í ensku

Tölfræði í ensku




Við notum
Movable Type 3.2

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License