15. mars, 2006
Chris Bascombe heldur því fram að Fabio Aurelio, vinstri bakvörður Valencia muni koma á frjálsri sölu til Liverpool í sumar.
Aurelio er 26 ára gamall og er frá Brasilíu. Samningur hans við Valencia rennur út í sumar og má hann því semja við lið þegar honum hentar.
Kristján Atli fjallaði um hugsanlega komu Aurelio í janúar. Þá sagði hann:
Það er í mínum huga ljóst að ef þessi strákur kæmi til okkar væri það frábært. Rafa fékk hann til Valencia á sínum tíma og myndi því vita nákvæmlega hvað hann er að “kaupa,” (munið: frítt) og ég get ekki lagt nógu sterka áherslu á það hversu mjög ég treysti Rafa varðandi leikmenn sem hann þekkir. Þetta er að sjálfsögðu bara slúður núna, en vonandi gengur þetta eftir. Vonandi.
Það er alveg ljóst að við þurfum meiri breidd í vinstri bakvarðarstöðunni. Ég skal hundur heita ef að Djimi Traore verður ekki seldur í sumar og það hljómar sannarlega betur að hafa Aurelio og Riise til að berjast um stöðuna í stað Riise og Warnock eða Traore.
Hérna er smá tölfræði um Aurelio. Hann afrekaði það m.a. eitt tímabil að skora 8 mörk fyrir Valencia í spænsku deildinni.
Á þessu tímabili hefur hann skorað tvö mörk fyrir Valencia. Hann hefur ekki leikið með brasilíska landsliðinu, en ef hann kæmi til Liverpool væri hann fyrsti brassinn til að spila fyrir Liverpool.