13. mars, 2006
Við höfum áður á þessari síðu gagnrýnt lýsingu á leikjum á Skjá Einum og á Enska Boltanum. Þó held ég að við höfum ekki gert það í langan tíma. Það er athyglisverð tilviljun að í síðasta skiptið, sem ég skrifaði um slíka lýsingu, þá var það í kjölfar leiks á milli Liverpool og Arsenal, sem að Rikki Daða lýsti.
Ég hef þolað lýsingarnar í vetur án þess að vera að gera mikið veður útaf þeim. Ég hef þolað aulabrandara Loga Ólafs og malið í öðrum lýsendum án þess að kvarta mikið á þessum vettvangi.
En eftir leikinn í gær fékk ég nóg. Lýsing þeirra Willum Þórs og Snorra Más varð þess valdandi að ég horfði í 10 mínútur á leikinn án hljóðs. Ég þoldi einfaldlega ekki meira og ég hef ýmislegt við lýsinguna að athuga. Ég vil þó taka það fram að ég vil ekki sjá þennan pistil verða vettvang fyrir eitthvað ómálefnalegt diss á lýsingarnar á enska boltanum eða lýsendurnar sjálfa.
Fyrir það fyrsta, þá er hljóðvinnslan á enska boltanum afleit. Hljóðið af vellinum er allt, alltof lágt og hljóðið í íslensku þulunum alltof hátt. Það gerir það að verkum að maður missir algjörlega af stemingunni, sem var eflaust á Highbury.
Ofan á lág umhverfishljóð bætist svo sú staðreynd að þeir Willum og Snorri eru alveg einstaklega rólegir í lýsingunni. Ég er ekki fylgismaður þess að menn séu með einhverja Suður-ameríska takta í lýsingunum, en þegar lækkað er svona í vallarhljóðunum þá hlýtur maður að ætlast til þess að þulirnir séu sæmilega hressir og byggi upp steminguna. Af einhverjum ástæðum þá talar Willum einstaklega rólega í lýsingunum sínum, líkt og hann væri að lýsa snóker og væri hræddur við að trufla leikmennina. Núna vil ég taka það fram að ég þekki Willum Þór, hann er sennilega besti þjálfari sem ég hef haft og hann er langt frá því að vera svona rólegur dags daglega, heldur er hann afar skemmtilegur náungi. Þess vegna skil ég ekki alveg hvers vegna hann hljómar svona dapur í lýsingum.
Líkt og í lýsingunni fyrir ári, þá einkenndist allt tal af alveg magnaðri neikvæðni útí allt, sem tengist Liverpool. Já, ég veit að Liverpool voru hræðilegir í fyrri hálfleik og þeir hafa ekki skorað mikið. En Liverpool hefur hins vegar verið að spila mikinn sóknarbolta og að halda öðru fram hlýtur að þýða að menn hafi ekki horft á Liverpool, heldur rýni einungis í tölfræði tengdu liðinu. Liverpool eru einnig EVRÓPUMEISTARAR og í þriðja sæti í ensku deildinni. Varla merki um lélegt lið.
Fyrri hálfleikurinn var nánast stanslaus gagnrýnispistill á Liverpool. Ef að einhverjir voru að horfa á sinn fyrsta leik í enska boltanum á þessu tímabili, þá hefði sá hinn sami eflaust geta dregið eftirfarandi ályktanir af lýsingunni:
- Liverpool fer aldrei fram fyrir miðju í leikjum.
- Arsenal hlýtur að vera sirka 20 stigum fyrir ofan Liverpool í deildinni, svo miklu betri telja lýsendur Arsenal vera.
- Enginn leikmaður Liverpool getur gert neitt skapandi.
- Sendingar Liverpool, sem skapa marktækifæri eru ekki nógu góðar því þær hefðu hugsanlega verið betri ef þær hefðu verið gefnar alveg upp við endamark. Peter Crouch klúðraði skalla úr opnu færi, en samt sáu lýsendurnir tilefni til þess að gagnrýna það að sendingin hafði ekki verið gefin upp við endamark og því hefði snúningurinn á boltanum sennilega verið óþægilegur fyrir Crouch.
- Allt, sem Liverpool gerir er “hægt”, “fyrirsjáanlegt”, “augljóst” og svo framvegis.
- Ef að leikmaður Liverpool skapar hættu uppvið markið, þá er það samt lélegt hjá honum, því hann hefði getað farið til vinstri í stað þess að fara til hægri og hann hefði sennilega átt að skjóta í stað þess að gefa.
Hvað eftir annað var gert lítið úr Liverpool og allar þeirra sendingar sagðar vera “fyrirsjáanlegar”, allir leikmenn voru sakaðir um að vera “hægir” og svo framvegis. Á Anfield spiluðu þessi tvö lið og þar yfirspilaði Liverpool lið Arsenal. Þrátt fyrir það þótti þulunum engin ástæða til svipaðra yfirlýsinga gagnvart Arsenal.
Íslenskir lýsendur mættu taka sér lýsingu enskra þula til fyrirmyndar. Til dæmis þá staðreynd að þögn er ekki neikvæð. Stundum er gott að leyfa leiknum aðeins að “anda”. Ég efast ekki um að margir þulanna hafa yfirgripsmikla þekkingu á fótbolta. En það þýðir ekki að það þurfi að greina leikinn niður í öreindir. Það er ágætt að benda stundum á athyglisverða punkta (einsog Guðjón Þórðar var frábær í að gera) en það er óþarfi að gera það allan leikinn.
Og svo þurfa íslenskir lýsendur allavegana að reyna að vera hlutlausir í lýsingum sínum. Það er ekki hægt að bjóða fólki uppá lýsingar, sem eru 90 mínútur af dissi á eitt lið, sérstaklega ekki ef það lið er vinsælast enskra liðið á Íslandi. Ég þoli alveg að liðið mitt sé gagnrýnt, en ég vil hins vegar geta notið þess að horfa á liðið mitt spila án þess að þulirnir eyði hverri sekúndu í að finna galla í leik þess. Er það furða að maður píni sig stundum til þess að eyða leikjunum í reykjarmekki á börum bæjarins?
p.s. Ég þarf nú oftast ekki að biðja þetta, en vinsamlegast haldið ummælum á málefnalegum nótum, en ekki láta það snúast um eitthvað skítkast í einstaka lýsendur. Við viljum endilega fá málefnalega umræðu um þessar lýsingar.