09. mars, 2006
Ég ætlaði mér að skrifa íhugulan og góðan pistil í dag, daginn eftir að við duttum úr úr Evrópukeppni Meistaraliða. Ég ætlaði að vanda vel til orða, reyna að koma hugsunum mínum frá mér á sem skýrastan hátt og tala alveg tæpitungulaust, en á ígrunduðum grundvelli.
Ég ætlaði að segja að það væri augljóst að Rafa treysti Djibril Cissé ekki til að spila sem framherji, þar sem hann hefur spilað nær eingöngu sem kantmaður sl. 3-4 mánuði. Ég ætlaði að segja að Fernando Morientes væri að mínu mati búinn að vera og ekki klúbbnum okkar samboðinn. Ég ætlaði að segja að Peter Crouch, þótt hann leggði ýmislegt gott til spilsins hjá liðinu, verði að bæta sig í að klára færin og að vera grimmari inní teig, og svo ætlaði ég að klykkja út með því að segja að við þurfum nauðsynlega að fá nýjan framherja, ef ekki tvo, til að mynda sóknarhóp okkar á næsta tímabili með Peter Crouch og (væntanlega) Robbie Fowler … og vonandi Florent Sinama-Pongolle líka.
Svo þegar ég kem heim úr vinnu í dag og lít yfir fréttamiðlana er eins og Rafa sé, ef rétt reynist, nánast búinn að segja fyrir mig það sem ég ætlaði að segja. Skv. BBC og öllum öðrum helstu miðlum hefur Rafa gert þá kröfu að hann fái meiri pening, allt að 30 milljónum punda, til leikmannakaupa í sumar. Rafa sagði víst eftirfarandi um málið:
“We need to work harder in terms of looking for players.
It is important to strengthen… and buy new players.
We will start working now. The scouting department is working for improving the team.”
Hann hefur líklega sagt þetta eftir leikinn, í viðtali við blaðamann eða á fréttamannafundi, en það er alveg ljóst að Rafa er að hugsa það sama og við: sóknarlega séð erum við ekki nógu beittir. Hvort hann er að hugsa um að styrkja vörnina líka er spurning, en fyrir næsta tímabil fáum við þá Jan Kromkamp, Daniel Agger og Gabriel Palletta þar inn. Á miðjunni ættu þeir Bolo Zenden, Momo Sissoko og Mark Gonzalez að vera komnir í hópinn fyrir næsta tímabil, þannig að það er langlíklegast að hann sé að tala um það sama og við: sóknarmenn.
Ég hef íhugað leikinn í gær - og fyrri leikinn gegn Benfica, og undanfarna leiki hjá okkur almennt - og ég kemst eiginlega ekki að neinni annarri niðurstöðu en þeirri að við þurfum að bæta hjá okkur sóknarlínuna. Auðvitað má ekki afsaka aðra menn frá ábyrgð - Gerrard, García, Kewell, Alonso, Hamann og allir hinir eru líka sekir um að klúðra færum og verða að bæta sig. En það breytir því ekki að ef Carragher og Gerrard fá þrjú skotfæri hvor, en Crouch fær fjögur, að þá hlýtur krafan að vera sú að Crouch skori markið. Hann er jú framherjinn … ekki þeir.
Mér finnst við í svipaðri stöðu og í fyrra, fyrir utan það að þá var hápunktur tímabilsins óvænt í lok maí. Við eigum enn möguleika á að eiga hápunkt í maí, en við getum farið alla leið í FA bikarkeppninni, en þess utan eigum við eftir tíu deildarleiki sem skipta miklu máli, en samt ekki svo miklu. Við erum á góðri leið með að tryggja okkur örugglega í hópi fjögurra efstu, sennilega þriðja sætið, en erum líka að berjast við erkifjendur okkar um annað sætið.
Á meðan þessar næstu vikur líða, á meðan við spilum þetta tímabil til enda og náum vonandi að enda með bros á vör (annað sætið, úrslitaleikur í bikarkeppni, eða jafnvel bæði) þá sé ég lítið annað framundan en að demba sér af fullum krafti út í slúðrið sem hlýtur að bíða okkar handan við hornið. Nú þegar Rafa hefur gert mönnum það ljóst að hann þurfi að eyða peningum til að styrkja hópinn fer tvenns konar slúður í gang:
Rafa fær ekki peninginn og fer til Real Madríd.
Hverjir fara? Og … hverjir koma?
Þannig að á endanum held ég að pistilinn sem ég ætlaði að skrifa sé óþarfur. Við erum meira og minna öll á sömu skoðun, ekki satt? Og Rafa líka, greinilega. Þannig að það er lítið annað að gera en búa sig undir þá flóðbylgju slúðurs sem er á leiðinni að landi, og vona að liðið okkar nái að hrista af sér vonbrigðin og halda áfram að pressa á United í baráttunni um annað sætið.
Svona að lokum, þá kemur minn “Stóridómur,” sem átti að vera niðurstaðan í pistli mínum um framherjana. Rafa mun augljóslega losa sig við Djibril Cissé í sumar og því þarf ekkert að ræða það frekar. Þá vona ég að hann selji Fernando Morientes líka og jafnvel Anthony Le Tallec, en haldi Peter Crouch og Florent Sinama-Pongolle. Svo myndi ég vilja sjá hann framlengja samning Robbie Fowler um eitt ár, ekki bara af því að hann hefur komið ágætlega inn í liðið síðan í janúar heldur líka af því að hann er Guð! Og svo má hann gerast svo vænn og versla Dirk Kuijt og Michael Owen fyrir okkur. Þá myndi ég brosa í sumar.