beach
« Rafa neitar ágreiningi við stjórnina. | Aðalsíða | Leikdagur og spennan magnast ... »

07. mars, 2006
Benfica á morgun!

Ohhh…. svona gerast þau best kvöldin á Anfield: Evrópukvöld! Stórleikur í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar fer fram annað kvöld þegar Benfica koma í heimsókn. Við munum öll hvað gerðist í fyrri leiknum; 1-0 tap á útivelli og það sem gerði kvöldið enn verra var að Momo meiddist illa.

Það versta við fyrri leikinn var nú samt sem áður spilamennska liðsins. Það vita allir hversu mikið Liverpool breytist frá því að spila gegn Charlton í deildinni og svo í Meistaradeildinni; oft á tíðum er hreinlega um allt annað lið að ræða. Það var ekki upp á teningnum í síðasta leik. Eru leikmenn orðnir saddir eftir að hafa unnið Meistaradeildina og vilja einbeita sér meira að deildinni? Nei ég held nú ekki….

Ég hef trú á því að Liverpool spili eins og sannir kóngar í þessum leik og komist áfram. Við þurfum að skora eitt mark til að fá framlengingu en 2-1 sigur dugir ekki. Það er því mjööög mikilvægt að fá ekki á sig mark. Það eru því frábær tíðindi að Sami Hyypia verður með í leiknum. Við þurfum á leiðtoga eins og Sami að halda í svona leik.

Evrópukvöld eru alltaf sérstök, þetta verður einstakt þar sem nýr banner verður sýndur í Kop stúkunni þar sem enginn annar en Einar Örn mun sitja. Bölvaður… Já og hann er líka að fara á Barcelona-Chelsea í kvöld fyrir þá sem ekki vita það! Ágætis vika hjá honum semsagt….. Stemmningi á Anfield er magnþrungin á slíkum kvöldum og ég held að áhorfendur verði tólfti maðurinn á morgun.

Ég held einfaldlega að Anfield muni koma leikmönnum Benfica í opna skjöldu og þeir muni ekkert vita hvaðan á sig stendur veðrið þegar sturlaðir áhorfendur byrja að styðja við bakið á Liverpool. Ég held að blásið verði til stórsóknar í leiknum. Frá fyrstu mínútu mun Liverpool sækja grimmt og reyna að uppskera markið sem skilur liðin að. Það þarf að koma í fyrri hálfleik….

Byrjunarliðinu ætla ég að spá svona:

Reina

Finnan - Hyypiä - Carragher - Riise

Luis Garcia - Gerrard - Alonso - Kewell

Crouch - Fowler


Garcia hefur reynst okkur happadrjúgur í Evrópukeppninni og eins og ég sagði áðan verður blásið til sóknar. Ég held að Gerrard verði því inni á miðri miðjunni með Xabi og Crouch verði frammi með Fowler sem mun skora sitt fyrsta löglega mark fyrir Liverpool síðan hann sneri aftur heim….

Lið Benfica er sterkt, á því er enginn vafi. Simao er frábær leikmaður sem ber að varast en ég held einhvernveginn að enginn eigi eftir að ná að sýna sitt rétta andlit á morgun. Ekki það að ég haldi að Liverpool taki þetta 4 eða 5-0 þá held ég bara að liðið verði mikinn hluta með boltann en hversu mörg mörk við skorum er spurningamerki.

Kannski er ég of sigurviss, ég veit það ekki. Ég hef bara svo mikla trú á því að við komumst áfram og ég finn það á mér að það gerist….

Rafa er nokkurn veginn sammála mér, eða ég honum?

“Miðað við færin sem við erum að skapa okkur og stuðningsmennina á Anfield á miðvikudaginn er ég viss um að þetta verði öðruvísi en gegn Charlton. Við munum skora gegn Benfica. Ef við þurfum að skoa tvö, jafnvel þrjú, af hverju ekki? Við munum skora. Leikmennirnir eru fullir sjálfstrausts og ég endurtek, við munum skora gegn Benfica. Ég vil sjá framherjana skora fleiri mörk, auðvitað vil ég það, en ég get ekki kvartað mikið yfir þeim þegar þeir eru að leggja sig svona mikið fram og gera svona marga hluti rétt.”


Ok, að hluta til sammála Rafa þarna, en framherjar eru til að skora mörk og ef menn ætla sér ekki að verða seldir strax í sumar þá þarf eitthvað að fara að gerast. Reyndar held ég að eini framherjinn sem er öruggur um að vera áfram hjá Liverpool eftir sumarið sé Peter Crouch.

MÍN SPÁ: 2-0 sigur. Við skorum snemma, Gerrard sér um það og svo þreytist maður ekkert að spá því að Fowler brjóti loksins markaþurrðina! :-)


YNWA

.: Hjalti uppfærði kl. 15:49 | 666 Orð | Flokkur: Upphitun
Ummæli (9)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?





Flokkar

Almennt · Enska bikarkeppnin · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · HM Félagsliða · Landslið · Leikmannakaup · Leikmenn · Leikskýrslur · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Sjónvarp · Slúður · Topp10 · Um síðuna · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·

Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Einar Örn

Kristján Atli

Aggi

Síðustu leikir

·L'pool 0 - Charlton 0
·Liverpool 1-0 Manchester City
·Benfica 1 - L'pool 0
·Liverpool 1 - Man U 0
·L'pool 1 - Arsenal 0

Síðustu Ummæli

SSteinn: Tek a moti Einari a Park a eftir, vid mu ...[Skoða]
villi sveins: spái 3-0. eins og vanalega. eða 3-1 og v ...[Skoða]
JónH: Þessi pæling með að Rafa sé að fara frá ...[Skoða]
Helgi: sælir félagar, herru......ég er með auka ...[Skoða]
trausti: Benfica er reynslulaust lið og við hljót ...[Skoða]
Hraundal: Stíflan brestur með miklum látum! 5-0 fy ...[Skoða]
Sigtryggur Karlssons: :-) Ég er skíthræddur við þenna ...[Skoða]
Kristján Atli: Ég er eins og þú Hjalti, nánast of sigur ...[Skoða]
Hannes: Ég var að horfa á þennan leik í draumi í ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Leikdagur og spennan magnast ...
· Benfica á morgun!
· Rafa neitar ágreiningi við stjórnina.
· Gæti Rafa farið í sumar?
· Fullt af góðum fréttum
· Hyypia meiddur.

Tenglar

Einar :: EOE.is

Kristján Atli.com


NewsNow Liverpool

SKY

Liverpool Echo

BBC

Liverpool (official)

LFC History

Liverpool.is

This Is Anfield

UEFA


Staðan í ensku

Tölfræði í ensku




Við notum
Movable Type 3.2

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License