04. mars, 2006
Jæja, það fellur í minn hlut að skrifa leikskýrslu um þennan leik. Okkar menn gerðu í dag markalaust jafntefli á heimavelli gegn Charlton Athletic, í leik þar sem við höfðum sennilega meiri yfirburði en við höfum haft í nokkrum öðrum leik í vetur. Ég dáðist að spilamennsku okkar manna og í huganum var ég meira og minna búinn að ákveða að skrifa sannkallaða hallelúja-skýrslu hérna … ég beið bara eftir þessu eina marki sem þurfti til að ég gæti skrifað þá skýrslu.
Það mark kom hins vegar ekki, og í staðinn fáið þið því öllu raunhæfara mat á því hvar Liverpool-liðið er statt í dag, sem fótboltalið.
Rafa gerði hvorki fleiri né færri en fimm breytingar á liðinu frá sl. helgi. Daniel Agger er meiddur og þeir Steve Finnan, John Arne Riise, Xabi Alonso og Fernando Morientes fengu langþráða hvíld og voru á bekknum ásamt Jerzy Dudek. Í þeirra stað var liðið í dag skipað eftirtöldum:
Reina
Kromkamp - Carragher - Hyypiä - Traoré
Cissé - Gerrard - Hamann - Kewell
Fowler - Crouch
Í stað þess að fara yfir gang leiksins ætla ég einfaldlega að skipta liðinu okkar upp í nokkra parta, og gefa þeim einkunn á bilinu 1 til 10:
MARKVARSLA: Pepe Reina er yndislegur. Hann er ótrúlega góður markvörður, getur varið ótrúlegustu skot og hefur margoft bjargað liðinu fyrir horn. Hann þurfti ekki að verja eitt einasta skot í dag, en samt sást vel hversu góður markvörður hann er því hann hélt einbeitningu allan tímann (eitthvað sem Jerzy Dudek getur ekki) og greip vel inní það litla sem þurfti. Einkunn: 10/10.
VÖRN: Carra og Hyypiä voru í banastuði í dag. Carra spilaði þetta eins og kóngur, framherjar Charlton virkuðu eins og flugur sem öngruðu hann lítillega, ekki mikið meira. Hyypiä sérhæfði sig í að vinna skallaeinvígi með því að negla boltanum fram um 50 metra í fyrri hálfleik en fór svo útaf meiddur í hléi. Djimi Traoré færði sig inn í miðjuna í hans stað og stóð sig alveg jafn vel. Bakverðirnir okkar - varaskeifurnar Kromkamp og Traoré - voru frábærir í þessum leik, sóttu vel allan leikinn (og Riise í þeim seinni) og átu sína kantmenn upp til agna. Einkunn: 10/10.
MIÐJA: Besta miðja á Englandi, og jafnvel ein sú albesta í Evrópu. Momo er meiddur og Xabi byrjaði á bekknum, en það skiptir engu máli. Við erum samt með Didi Hamann og Stevie G á miðjunni og þeir geta stjórnað vellinum gegn hvaða miðju sem er. Einkunn: 10/10.
KANTSPIL: Kantspilið í þessum leik var sennilega það besta sem ég hef séð í vetur. Djibril Cissé átti sinn besta leik sem hægri vængmaður hjá Liverpool og Jan Kromkamp gaf Steve Finnan ekkert eftir sem sókndjarfur bakvörður. Hinum megin fóru Harry Kewell og Djimi Traoré hægt af stað en þeim óx ásmegin eftir því sem leið á, og í síðari hálfleik virtist á tíma sem allt okkar spil færi í gegnum þá Kewell og Riise vinstra megin og Cissé hægra megin. Hvað fengum við mörg horn og margar góðar fyrirgjafir frá köntunum í þessum leik? Einkunn: 10/10.
FRAMHERJAR - SAMSPIL: Undanfarið hef ég hrifist mjög af þeim Morientes og Crouch hvað þetta varðar. Morientes er valinn fram yfir Cissé sem framherji af því að hann leggur miklu meira af mörkum til spilsins en sá franski, og Crouch er gríðarlega mikilvægur hvað varðar að koma öðrum inní sóknarspilið. Í dag voru þeir Crouchie og Fowler frammi og stóðu sig mjög, mjög vel hvað þetta varðar og það gerðu þeir Cissé og Kewell líka, þegar þeir “köttuðu inná völlinn” eins og sagt er og blönduðu sér í sóknina. Þegar Morientes kom inná gerði hann þetta líka og náði m.a. einu sinni að setja Kewell nærri því innfyrir, en það var brotið á honum. Einkunn: 10/10.
FRAMHERJAR - NÝTING: Fernando Morientes virðist vera orðinn hataðri sem framherji hjá Liverpool en Emile Heskey var þegar verst lét. Hann lék þó ekki nema 10 mínútur í dag. Hann fékk eina fyrirgjöf frá Cissé sem hann hefði átt að ráðast á en gerði ekkert í málinu, að öðru leyti er ekki hægt að horfa á hann í dag. Crouch, Fowler, Cissé, Kewell, Gerrard, Alonso, Riise … og jú, Morientes. Ég er að horfa á ykkur! Þið eruð einfaldlega, allir sem einn, hræðilegir í að nýta marktækifæri! Skammist ykkar. Sá eini sem við eigum í hópnum okkar í dag sem virðist geta nýtt færin sín er Luis García, sem var fjarri góðu gamni í dag … því miður. Einkunn: 0/10. Núll!!!!!!!
Miðað við þann leik sem ég horfði á í dag, þá er vandamálið eins skýrt og sólin á heiðskírum himni. Við vorum einfaldlega frábærir í dag, gjörsigruðum þetta Charlton-lið á öllum sviðum knattspyrnunnar, nema einu … við getum ekki ýtt helvítis, djöfulsins, andskotans, fjandans tuðrunni yfir marklínu andstæðinganna. Og svona hefur þetta verið í allan vetur, en sást bara svo miklu betur í dag en það hefur sést fyrr. Við erum að vinna leiki 1-0 sem við ættum að vera að vinna 4-0, og svo eins og í dag þegar við áttum að ná þessu eina marki náum við því ekki. Það getur ekkert lið unnið alla leiki sína 1-0, ef menn eru ekki beittari en það kemur að því að menn ná ekki að skora þetta eina mark sem þarf til að sigra. Það gerðist í dag.
Bitleysi. Ef við værum jafn góðir í að nýta marktækifærin okkar og við erum í öllum öðrum hliðum knattspyrnunnar værum við með lið sem gæti sótt hart að Chelsea í toppbaráttu Úrvalsdeildarinnar. Þangað til það verður að staðreynd verðum við einfaldlega að gera okkur að góðu svona ömurleg jafntefli eins og í dag.
Undanfarin tvö sumur hef ég sagt alveg skýrt frá mínum sjónarhóli að ég vildi frekar sjá Rafa eyða 15 milljónum punda í 3-4 góða leikmenn en bara eina hetju. Og hann hefur gert það, og nýtt peninginn vel og búið til mikla og góða breidd af öflugum leikmönnum. Það sást best í dag, þar sem feykimarka góða leikmenn vantaði í liðið en við spiluðum samt eins og f###ing kóngar.
Næsta sumar ætla ég hins vegar að koma með eftirfarandi kröfu: Að því gefnu að enginn af þeim 20 eða svo aðalliðsmönnum sem við höfum í dag yfirgefi liðið (nema kannski einn framherjanna), þá HEIMTA ég að við tökum þær 10-15 milljónir punda sem Rafa hefur til umráða í sumar og noti þær meira og minna allar í EINN HEIMSKLASSA FRAMHERJA!
Fyrr verðum við ekki með meistaralið í höndunum. Takk fyrir.