01. mars, 2006

Spurningunni frá því í síðustu færslu hefur verið svarað. Darren Bent fékk nærri því fullan leik við hlið Wayne Rooney en stóð sig víst illa, á meðan Jermain Defoe náði engum tengslum við leikinn þær 10 mínútur sem hann var inná. Okkar maður, Peter Crouch, skoraði hins vegar jöfnunarmark Englendinga gegn Úrúgvæ á Anfield með skalla eftir fyrirgjöf Joe Cole. Nokkrum andartökum síðar sendi hann góða sendingu innfyrir á Joe Cole en skot hans var varið. Cole skoraði svo sigurmarkið í viðbótartíma.
Flott hjá Crouchie, sem ég held að hafi með þessu verið að gulltryggja sér farseðilinn til Þýskalands í sumar og gott ef hann verður ekki fyrsti varamaður inn fyrir Owen og Rooney, miðað við hvað Defoe og Bent eru í vandræðum með að stimpla sig inn í landsliðinu. Og svo náttúrulega veit maður aldrei, kannski verður Owen ekki orðinn fyllilega heill & leikfær í júní (fær bara nokkra leiki með Newcastle í vor áður en tímabilið klárast til að spila sig aftur í form) þannig að við gætum séð Crouchie spila helling á HM í sumar. Töff!
Annars spiluðu Carra og Gerrard u.þ.b. hálfan leik hvor og sluppu óskaddaðir úr þessu. Flott mál, það. Næsta mál á dagskrá: Charlton … og Crouch hlýtur að hafa mikið sjálfstraust fyrir þann leik!