25. febrúar, 2006
Lærisveinar “Psycho” mæta á Anfield á morgun.
Í hádeginu á morgun tökum við á móti lærisveinum Stuart Pearce á Anfield. Fyrirfram ætti þetta að vera nokkuð klár sigur fyrir mér og rökin eru þessi:
Við töpuðum síðasta leik á loka mín. leiksins og við viljum komast á beinu brautina hið fyrsta. Við erum búnir að spila 13 leiki í deild eða bikará heimavelli án þess að tapa. Liðin hafa mæst á Anfield 8 sinnum í Úrvalsdeildinni og höfum við einungis tapað einu sinni og gert eitt jafntefli en unnið 6 sinnum. Man City hefur einungis unnið einn af síðustu 12 í deild og bikar á útivelli. Já það má geta þess einnig að enginn leikmaður andstæðingana (Alonso með sjálfsmark gegn Birmingham) hefur skorað mark á Anfield í deildinni síðan í 2. október og að það eru 272 mínútur síðan City skorað deildarmark á útivelli.
S.s. þetta á að vera klárt mál eða hvað?
Við söknum að sjálfsögðu Sissoko sem er frá í ótímabundinn tíma, Fowler sem má ekki spila gegn sínum fyrrum félögum (hluti af samning milli LFC og City) og síðan er Carragher í leikbanni vegna 5 gulra spjalda.
Kíkjum á það byrjunarlið sem ég tel að sé líklegt á morgun:
Reina
Finnan - Agger - Hyypiä – Riise
García - Alonso - Gerrard - Kewell
Cissé - Crouch
Varamenn: Dudek, Morientes, Hamann, Kromkamp og Traore.
En þrátt fyrir að þessa menn vanti (þá sérstaklega Momo og Carra) þá tel ég að við séum með næga breidd í hópnum sem er gott. Það sem hefur helst pirrað mig er að við erum búnir að spila ágætlega að undanförnu, mjög traustir varnarlega og á miðjunni. Gætum svo sem skapað okkur aðeins fleiri færi (sbr. Benfica leikurinn) en eins og á móti Birmingham og Arsenal þá vantaði alls ekki færin hins vegar að klára þau. Reyndar er það vandamál vel upplýst og búið að skrifa nóg um það í bili.
Man City liðið er stjórnað af einum besta vinstri bakverði Englands fyrr og síðar, Stuart Pearce. Nýverið var verið að tengja hann við enska landsliðið en hann gaf lítið út á það í nýlegu viðtali við The Times. Hann getur hins vegar komið sínum mönnum í vígahug líkt og gerðist gegn manchester united
nýverið og þá spila allir leikmenn langt yfir getu. Ég var ávallt hrifinn af Pearce sem leikmanni, ósérhlífinn, mikill leiðtogi og baráttuhundur. Hann gat skorað frábær mörk með sínum baneitraða vinstri fæti en líka klikkað úr vítum, vont! Hvort hann sé arftaki Erikson hhhmmm líklega ekki strax en kemur vel til greina eftir nokkur ár.
Man City liðiðhefur á að geyma fínum knattspyrnumönnum eins og Joey Barton sem hefur spilað fantavel á þessu tímabili og m.a. talað um að hann eigi séns í enska hópinn fyrir æfingaleikinn á miðvikudaginn. Við þekkjum að sjálfsögðu David James en hann telst í dag leikreyndasti markmaðurinn í deildinni. Hann getur verið frábær og unnið leiki uppá sjálfdæmi en síðan á hann til að spila of mikið tölvuleiki og missa einbeitinguna… við vitum hvernig það endar.. tap.
Þetta er svona það lið sem ég giska á að Pearce stilli upp á morgun:
James
Mills - Dunne - Distin – Thatcher
Croft - Barton - Musampa - Riera
Vassell - Sibierski
Hjá City vantar vegna meiðsla þá Andy Cole, Claudio Reyna og Trevor Sinclair og það munar um þá.
Ég spái okkur sigur og nokkuð öruggum sigri. 3-0. Gerrard skorar fyrsta markið með góðu skoti utan af velli, óverjandi. Í síðari hálfleik skorar Cisse mark eftir stungusendingu og James ver hann inn. Í lokinn gerir James stór mistök í úthlaupi og Agger skorar sitt fyrsta mark fyrir Liverpool og innsiglar öruggan sigur.
Hljómar þetta ekki betur en vel krydduð lygasaga?