21. febrúar, 2006
Samkvæmt official vefnum, þá mun Momo Sissoko verða eftir í Portúgal á spítala vegna alvarlegs augnskaða, sem hann varð fyrir í leiknum.
Þetta eru hræðilegar fréttir. Það er vonandi að þetta sé ekki eitthvað varanlegt.
Uppfært (Kristján Atli): Opinbera síðan hefur staðfest að meiðsli Momo séu vissulega alvarleg. Hann skaddaðist á sjóntaug hægra augans og þarf að fara í frekari rannsóknir þegar hann kemur heim til Englands, en það er allt útlit fyrir að hann verði frá í einhvern lengri tíma - vikur eða mánuði, frekar en daga. En þó er ekkert vitað enn hversu lengi.
Þetta er náttúrulega skelfilegt áfall fyrir Liverpool-liðið, það er ekki spurning. Ef ég ætti að kjósa leikmann tímabilsins hjá okkur í dag er ég nokkurn veginn viss um að Sissoko væri í einu af tveimur efstu sætunum, svo vel hefur hann leikið. Hann er enn bara tvítugur en þegar orðinn nær ómissandi í þessu liði. Og þetta er náttúrulega hræðilegt fyrir Sissoko sjálfan, en vonandi jafnar hann sig á þessu.
Sendum stráknum hugskeyti og vonum að þetta jafni sig, sama hvaða tíma það tekur.