20. febrúar, 2006

Á morgun hefst hin yndislega Meistaradeild Evrópu aftur eftir tveggja og hálfs mánaða hlé. Síðast þegar hasarinn stóð yfir gerðum við jafntefli við Chelsea á Stamford Bridge, og tryggðum okkur sigur í riðlinum, á meðan erkifjendurnir í manchester united
töpuðu frekar óvænt fyrir Benfica í Portúgal og duttu alveg út úr öllum Evrópukeppnum. Við vorum í kjölfarið dregnir saman við Benfica-liðið sem er vissulega með blóðbragð á tungunni eftir að hafa lagt lið sem er fyrir ofan okkur í deildinni þessa stundina. Þeir portúgölsku hljóta að telja sig eiga góðan séns, þótt við séum Evrópumeistarar, en sá séns þeirra byggist á einu og aðeins einu:
Þeir þurfa að sækja til sigurs á heimavelli á morgun, selja sig dýrt, og gera hvað sem er til að fara með gott forskot til Englands!
Og eins og þið sem fylgdust eitthvað með þessu liði í riðlakeppninni í haust vitið, þá geta þeir vissulega sótt. Þeir eru sennilega með eitt lágvaxnasta liðið í keppninni í ár, en á móti kemur að það eru fáir með jafn ótrúlega snöggt og teknískt lið og Benfica. Þeirra hættulegustu menn eru án efa Nuno Gomes framherji, sem svipar talsvert til Hernan Crespo á velli og getur skorað alls konar mörk, og svo fyrirliðinn Simao Sabrosa sem við þekkjum vel. Ég vona allavega innilega að við brjótum ekkert af okkur rétt fyrir utan vítateig á morgun, því Sabrosa er sennilega ein albesta skyttan í Evrópu um þessar mundir. Þá verður einnig mikilvægt að stöðva miðjumanninn Petit, en hann stjórnar spilinu þeirra á svipaðan hátt og Xabi Alonso gerir fyrir okkur.
Hvað okkar menn varðar sé ég ekki fyrir mér miklar breytingar á liðinu sem tók á móti manchester united
um helgina. Xabi Alonso kemur líklega aftur inn í liðið, og þá sennilega á kostnað hins stórgóða Didi Hamann (nema að Rafa vilji hvíla Momo Sissoko) og svo kemur Robbie nokkur Fowler inn í hópinn á nýjan leik.
Ég spái sem sagt eftirfarandi byrjunarliði á morgun:
Reina
Finnan - Carragher - Hyypiä - Riise
Gerrard - Alonso - Didi/Momo - Kewell
Morientes - Crouch
BEKKUR: Dudek, Warnock, Traoré, Didi/Momo, Luis García, Fowler, Cissé. Þeir Jan Kromkamp og Daniel Agger eru náttúrulega ólöglegir í Evrópu í vetur.
MÍN SPÁ: Ég sé fyrir mér talsvert opinn og skemmtilegan leik, þar sem stemningin hjá Benfica-liðinu og stuðningsmönnum þess er venjulega mikil á heimavelli og þeir munu örugglega selja sig dýrt til að reyna að ná sigri. Þeir hafa engu að tapa, gætu þeir hugsað með sér, og því býst ég við að þeir reyni að sækja sigur gegn okkur eins og þeir gerðu gegn United fyrir áramót.
Okkar helstu möguleikar felast í því að standast áhlaup þeirra í upphafi leiks og svo að stjórna miðjunni. Ég er þess fullviss um að við getum gert það og ef við náum að halda tempóinu á leiknum niðri og boltanum innan liðsins, þá gætum við eftir svona fyrsta hálftímann tekið öll völd og jafnvel farið svo langt að innbyrða sigur á morgun. Ég býst þó við að þetta sókndjarfa Benfica-lið skori á morgun, þannig að við gætum þurft að skora a.m.k. eitt til að ná jafntefli.
Ég ætla að spá 1-1 jafntefli í stórskemmtilegum leik á morgun. Það verða færi á báða bóga og þetta verður hin besta skemmtun, en ef við náum jafntefli á morgun er ég fullviss um að við klárum dæmið á Anfield í upphafi marsmánaðar.
Áfram Liverpool! Hvað er skemmtilegra en klassískt kvöld í Evrópu?!?