beach
« Gjaldtaka Sýnar | Aðalsíða | Xabi meiddur, Crouch með »

17. febrúar, 2006
FA bikarinn á Anfield á morgun!

- Liverpool vs. manchester united

Leikurinn hefst klukkan 12.30
Dómari er hinn geðþekki Howard Webb sem kemur úr Jórvíkurskíri á Englandi.
Ef leiknum lyktar með jafntefli fer fram annar leikur, þann 15. mars sem ber upp á miðvikudag þetta árið og hefjast leikar þá klukkan 20.00.

Það er hægt að huga að ansi miklu þegar upphitun fyrir rimmu þessara fornu fjenda er að ræða, það er hægt að skrifa BA ritgerð um tölfræði og annað en það verður ekki gert að þessu sinni. Aðeins eitt skiptir máli:

Við verðum að vinna þennan leik!

Tölfræðin er svo sannarlega ekki með okkur í þessum leik. Hverjum er ekki sama? Ég held að það muni ekki skipta nokkru máli um það hvernig leikur á morgun fer hvort liðið vann árið 1999 þegar Stig Inge Bjørnebye og Vegard Heggem voru í byrjunarliðinu? Þá var að vísu Robbie nokkur Fowler í liðinu en það getur hann ekki núna þar sem hann lék með City í FA bikarnum. Þá töpuðum við 2-1 en ég held að annað verði upp á teningnum á morgun…..

Ljóst er að um hörkuleik verður að ræða. Það er gífurlegur heiður í veði og bæði lið vilja ólm vinna bikarinn, að sjálfsögðu. Ég kann ekki við að tala of mikið um síðustu viðureign þessara liða sem var fyrir skömmu í deildinni, við eigum harma að hefna, látum þar kyrrt við liggja.

Það vilja allir fá að spila í þessum leik en ég held að Rafa haldi sig við ellefu manna byrjunarlið. Bolo er meiddur, Crouch, Agger og Alonso eitthvað tæpir held ég… skiptir ekki öllu máli.

Ég spái byrjunarliðinu svona:

Reina

Finnan - Hyypiä - Carragher - Riise

Gerrard - Sissoko - Alonso - Kewell

Morientes - Cisse

Bekkurinn: Dudek, Agger, Hamann, Garcia, Crouch.


Semsagt tvær breytingar frá sigurliðinu úr Arsenalleiknum, Dudek og Fowler út fyrir Pepe og Cisse. Ég held að Rafa seti Reina aftur í liðið, en það er þó alls ekki víst, en það er mín tilfinning. Garcia átti góða innkomu gegn Arsenal eins og við vitum en ég er ekki viss um að hann sé tilbúinn í byrjunarliðið eftir meiðslin. Hann kemur þá bara inn sem super-sub ef þess er þörf! Hamann gæti þó komið með reynsluna inn en Sissoko er bara að spila og vel til þess að halda ekki sæti sínu að mínu mati….

Ég ætla ekki að eyða mínum dýrmæta tíma í að fjalla um lið manchester united eitthvað meira en þörf er á. Það vita allir allt um þetta lið og eins og við höfum bent á, er okkur nákvæmlega sama hvernig andstæðingar okkar stilla upp, það skiptir engu máli. Það sem skiptir máli er okkar lið.

Mín spá: Ég hef það á tilfinningunni að Morientes muni brjóta ísinn sem hann er að reyna að klöngra sér í gegnum og skori í leiknum. Auk þess held ég að Gerrard skori. Hvort manchester united læði inn einu skal ósagt látið en 2-0 er mín spá.

Hver er ykkar?

.: Hjalti uppfærði kl. 02:23 | 493 Orð | Flokkur: Upphitun
Ummæli (12)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?





Flokkar

Almennt · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · HM Félagsliða · Landslið · Leikmannakaup · Leikmenn · Leikskýrslur · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Sjónvarp · Slúður · Topp10 · Um síðuna · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·

Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Einar Örn

Kristján Atli

Aggi

Síðustu leikir

·L'pool 1 - Arsenal 0
·Wigan 0 - Liverpool 1
·Charlton 2 - "Liverpool" 0
·Chelsea 2 - Liverpool 0
·L'pool 1 - Birmingham 1

Síðustu Ummæli

bennzi: Vörnin verður á tánnum. Liverpool byrjar ...[Skoða]
bennzi: Liðinu spái ég svona: Reina ...[Skoða]
Eiki Fr: Ef Alonso verður ekki með mundi ég telja ...[Skoða]
Pétur: Þetta er jafnteflisleikur... replay á Ol ...[Skoða]
einare: Ja hérna,,,,Alonso verður sárt saknað á ...[Skoða]
Hjalti: Hamann dettur þá væntanlega bara inn... ...[Skoða]
Gisli K: Alonso er meiddur ...[Skoða]
Höski Búi: Maður þorir varla að spá fyrir um þennan ...[Skoða]
einare: Þetta verður ekkert verður gefið eftir. ...[Skoða]
Doddi: Mér líkar spá Hössa :-) en ég held é ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Xabi meiddur, Crouch með
· FA bikarinn á Anfield á morgun!
· Gjaldtaka Sýnar
· Liverpool með 8. mestu veltuna í heimi
· Dudek eða Reina?
· Liverpool semur við Adidas

Tenglar

Einar :: EOE.is

Kristján Atli.com


NewsNow Liverpool

SKY

Liverpool Echo

BBC

Liverpool (official)

LFC History

Liverpool.is

This Is Anfield

UEFA


Staðan í ensku

Tölfræði í ensku




Við notum
Movable Type 3.2

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License