16. febrúar, 2006
Gjaldtaka Sýnar fyrir HM hefur verið mikið rædd meðal okkar fótboltafíkla. Einhverjir hafa rætt þetta í kommentum á þessari síðu og svo höfum við fengið póst, þar sem við erum hvattir til að ræða þetta málefni.
Ég og Kristján ræddum aðeins um þetta (Aggi býr í Danmörku og Fréttablaðið er að drepa Hjalta úr vinnu). Í raun má segja að við séum ekkert sérstaklega hneykslaðir á þessu.
Þegar að Sýn keypti réttinn að HM, þá væntu þeir þess væntanlega að þeir myndu ná inn fleiri tryggum áskrifendum. Hluti af viðskiptamódelinu hlýtur að hafa byggt á þessu. Og þeir gera vel í að hygla þeim, sem eru tryggir áskrifendur Sýnar líkt og við Kristján erum. Þeir, sem hafa verið með Sýn fast, þurfa ekkert að borga aukaleg fyrir HM. Ekki krónu!
Hinir, sem vilja hins vegar aðeins kaupa Sýn yfir HM, þurfa hins vegar að borga gjald. Ég trúi varla öðru en að menn hafi gert ráð fyrir einhverju gjaldi, þar sem að það væri varla hægt að ætlast til að þurfa bara að borga hefðbundið mánaðargjald yfir HM, þar sem það er sennilega dýrasti sjónvarsviðburður í heimi. Hvort að gjaldið sé of hátt má svo deila um.
Þannig er nú okkar skoðun. Sennilega er hún lituð af því að við tveir þurfum ekki að hafa neinar sérstakar áhyggjur og sennilega værum við talsvert reiðari ef við hefðum aðeins áhuga á HM en ekki öðrum atburðum á Sýn. En svona er þetta. Okkar skoðun er allavegana komin, en ykkur er velkomið að ræða þetta frekar í ummælum hér.