beach
« Liverpool semur við Adidas | Aðalsíða | Liverpool með 8. mestu veltuna í heimi »

15. febrúar, 2006
Dudek eða Reina?

Það er fullt af fréttum í dag og mikið skrifað um klúbbinn. Ég nenni ekki að skrifa um það allt, en bendi áhugasömum samt á eftirfarandi: Liverpool FC staðfesta samning við Adidas (innskot (EÖE): Sjá færslu um það mál hér), Sérfræðingur BBC fjallar ítarlega um Gabriel Paletta (mjög áhugaverð lesning), Nýjasti pistill Paul Tomkins um meistara meistaranna, Bob Paisley, en þessa vikuna eru tíu ár liðin frá andláti hans.

Það sem mig langaði til að ræða (ykkur er þó velkomið að tjá ykkur um aðra hluti hér, eins og alltaf) er spurning sem hlýtur að brenna á vörum flestra Púllara fyrir leikinn gegn manchester united á laugardaginn: Hvor verður í markinu, Jerzy Dudek eða Pepe Reina?

Ég er ekki að tala um getu þeirra hér. Höfum það á hreinu. Að mínu mati, ef ég mætti velja þá myndi ég velja Pepe Reina hvenær sem er. Hann er betri markvörður og liðið er betra, og traustara, með hann á milli stanganna en Dudek. Hins vegar er komin upp frekar sérkennileg staða, sem er auðskýrð með tveimur punktum:

  1. Pepe Reina er búinn að vera markvörður #1 alla leiktíðina og var maðurinn á bakvið metsetninguna í haust, þegar við héldum hreinu í ellefu leikjum í röð. Hann er búinn að vera frábær og kemur til greina sem besti leikmaður okkar í vetur, að mínu mati.

  2. Dudek kom inn í leikbanni Reina og er núna búinn að spila þrjá leiki í röð. Í fyrsta af þeim leikjum töpuðum við 2-0, en það var varla honum að kenna. Vítið sem hann fékk á sig var ekki víti, og hann gat ekkert gert við seinna markinu, þótt það hafi farið í klofið á honum. Í næstu tveimur leikjum spilaði hann hins vegar þrusuvel, þó betur í Wigan-leiknum þar sem hann hafði meira að gera, og hélt hreinu í þeim báðum.

Við þetta bætist sú staða að Rafa lofaði Jerzy að hann fengi að halda áfram, ef hann sýndi nóg í fjarveru Reina til að verðskulda það. Þannig að nú er komin upp sú staða að Rafa hefur um tvennt að velja:

Á hann að verðlauna Dudek fyrir góða frammistöðu og tvo leiki í röð án þess að fá á sig mark með því að leyfa honum að spila gegn United á Anfield - sem er vissulega martraðaliðið hans - á kostnað Reina? Með þessu mælir ýmislegt; Rafa gaf honum jú “loforð” skv. hans eigin orðum, hann hefur vissulega leikið vel í þessari viku, og það var jú Pepe Reina að kenna að hann fór í leikbann, ekki satt? Ég meina, Reina getur í raun ekki kvartað ef hann þarf að byrja á bekknum og vinna sér sæti í liðinu að nýju?

EÐA … Á hann að ganga á bak orða sinn við Dudek og gera það sem kemur liðinu til góðs, setja betri markvörðinn beint inn? Það væri rétt ákvörðun hvað frammistöðu liðsins varðar, vissulega, en gæti það ekki einnig reynst skaðlegt til lengri tíma? Ef hinir leikmennirnir sæju hann ganga á bak orða sinna gagnvart Dudek, gæti það ekki grafið undan trausti þeirra hinna til hans? Eitt af því sem ég hataði hvað mest við Gérard Houllier var að hann talaði alltaf um að allir leikmenn hefðu jafnt tilkall til byrjunarliðsstöðu, en það var sama hversu vel Jari Litmanen og Milan Baros spiluðu nær undantekningarlaust þegar þeir fengu sénsinn, Emile Heskey átti samt alltaf fast sæti í liðinu.

Munið: Ég er EKKI að tala um hvor þeirra sé betri markvörður. Reina er betri, við erum flestir ef ekki allir sammála um það, og því hef ég ekki mikinn áhuga á að sjá ummæli eins og, “Reina inn Dudek getur ekki neitt.” Það er EKKI það sem ég er að velta fyrir mér hér. Ég er að pæla í því hvort Rafa sé að breyta rétt gagnvart Dudek með því að taka hann út úr liðinu fyrir Reina á laugardaginn, eða hvort að Dudek fái sénsinn sem hann á í rauninni skilinn (miðað við að Rafa gaf honum loforð) ???

Hvað finnst ykkur?

.: Kristján Atli uppfærði kl. 17:43 | 670 Orð | Flokkur: Vangaveltur
Ummæli (24)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?





Flokkar

Almennt · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · HM Félagsliða · Landslið · Leikmannakaup · Leikmenn · Leikskýrslur · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Slúður · Topp10 · Um síðuna · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·

Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Einar Örn

Kristján Atli

Aggi

Síðustu leikir

·L'pool 1 - Arsenal 0
·Wigan 0 - Liverpool 1
·Charlton 2 - "Liverpool" 0
·Chelsea 2 - Liverpool 0
·L'pool 1 - Birmingham 1

Síðustu Ummæli

Sigtryggur Karlssons: :-) Einfalt mál. Af tveimur góðum vi ...[Skoða]
Svenni: Vargur hefurðu horft á úrslitaleikinn sí ...[Skoða]
Höski Búi: Sanngjarna leiðin: Carson ætti að fá le ...[Skoða]
BigGun: Held að Reina ætti að fara beint í liðið ...[Skoða]
agli: Þetta er frekar einfalt...á ekki alltaf ...[Skoða]
Kristófer: Dudek inn ekki spurnig. Rafa verður að s ...[Skoða]
Svavar: No way Jose að Dúddi verði valinn framyf ...[Skoða]
Hafliði: Þó svo að ég c hrifnari af Reina þá vil ...[Skoða]
Gummi H: Ég hallast að því að frammistaða Dudek í ...[Skoða]
Vargurinn: Ég mundi vilja sjá Dudek í markinu, þrát ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Liverpool með 8. mestu veltuna í heimi
· Dudek eða Reina?
· Liverpool semur við Adidas
· L'pool 1 - Arsenal 0
· Liðið gegn Arsenal
· Liverpool staðfesta kaup á Paletta!

Tenglar

Einar :: EOE.is

Kristján Atli.com


NewsNow Liverpool

SKY

Liverpool Echo

BBC

Liverpool (official)

LFC History

Liverpool.is

This Is Anfield

UEFA


Staðan í ensku

Tölfræði í ensku




Við notum
Movable Type 3.2

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License