beach
« Crouchy | Aðalsíða | Liverpool staðfesta kaup á Paletta! »

13. febrúar, 2006
Arsenal á Anfield, á morgun!

Hvar er Neil Mellor þegar maður þarfnast hans?

Annað kvöld taka okkar menn á móti fyrrverandi Englandsmeisturum Arsenal í ensku Úrvalsdeildinni. Fyrir einu og hálfu ári síðan var Arsenal-liðið ósigrandi, að því er virtist, og með eitt albesta lið í Evrópu að margra mati. Kraftaverkamaðurinn Arsene Wenger hafði byggt upp lið sem allir öfunduðu og hafði sett met í fjölda leikja í röð í deild án taps. Þeirri sigurhrinu þeirra, sem entist í eitt og hálft ár, lauk svo haustið 2004 þegar þeir töpuðu ósanngjarnt fyrir manchester united á Old Trafford. Strax í kjölfarið komu þeir til Anfield Road, and the rest is history

Arsenal-liðið missti flugið aðeins í fyrra, en endaði þó í öðru sætinu í deildinni einhverjum tugum stiga á undan Liverpool. Sl. sumar urðu þeir svo fyrir mikilli blóðtöku, þegar Brasilíumaðurinn Edu fór til Valencia.

(1)

Liðið hefur varla verið svipur hjá sjón síðan, en auk þessa mikla missis síðasta sumar hafa þeir einnig lent í fáránlegum meiðslavandræðum, sem minna um margt á þau vandræði sem við áttum í í fyrra, auk þess sem þeir misstu þá Kolo Touré og Emanuel Eboue í Afríkukeppnina á erfiðum tíma. Ofan á þetta allt saman bættist persónuleg krísa Sol Campbell, sem lét sig hverfa þegar þeir þörfnuðust hans mest, og því er veruleikinn í dag fyrir Arsenal frekar gráleitur: þeir eru í fimmta sæti deildarinnar, þremur stigum á eftir erkifjendunum í Tottenham, sjö stigum á eftir Liverpool, og sjá alvarlega fram á að missa af sæti í Meistaradeildinni að ári.

Skv. fréttum eru þeir Kolo Touré og Emanuel Eboue klárir í slaginn fyrir morgundaginn eftir að hafa lokið keppni í Afríku, en á móti kemur að þeir Dennis Bergkamp, Robin Van Persie og Aleksandr Hleb eru tæpir. Þá verður José Antonio Reyes pottþétt ekki með, en hann er heppinn að vera ekki fótbrotinn eftir tæklingu frá Faye Bolton-manni um helgina (ein sú versta sem ég hef séð á ævinni sem ekki endaði í rauðu spjaldi). Líklegt byrjunarlið Arsenal á morgun hlýtur því að vera eitthvað á þessa leið:

Lehmann

Touré - Senderos - Campbell (?) - Djorou

Ljungberg - Gilberto - Fabregas - Pires

Adebayor - Henry

Hér er ég að reikna með tvennu; að Wenger velji reynslu af stórleikjum fram yfir frískleika (annars yrðu annað hvort Flamini eða Larsson í liðinu í stað Robert Pires) og að Sol Campbell verði með í þessum leik (var ekki í hóp um helgina), en ef hann er ekki með gæti Kolo Touré farið í miðvörðinn og einhver á borð við Flamini farið í bakvörðinn. Hvernig sem þetta verður, þá er ljóst að þetta Arsenal-lið er ekkert líkt því sem þeir gætu stillt upp ef þeir væru með alla menn heila.

Hjá okkar mönnum er Peter Crouch ennþá meiddur og verður líklega ekki með á morgun, þannig að ég tippa á að Fernando Morientes haldi sæti sínu í byrjunarliðinu. Þá er Luis García meiddur og Benítez vill sennilega ekki spila hinum varnarsinnaða Didi Hamann á heimavelli, þannig að ég spái því að hann færi fyrirliðann okkar, Steven Gerrard, inná miðjuna og stilli upp eftirfarandi liði á morgun:

Dudek

Finnan - Carragher - Hyypiä - Riise

Cissé - Gerrard - Alonso - Kewell

Fowler - Morientes

Auðvitað erum við í miðri brjálaðri leikjatörn og því ljóst að Rafa mun reyna að hvíla einhvern, einhvers staðar. Kannski hvílir Xabi Alonso á morgun í stað Momo Sissoko eða Didi Hamann, kannski hvílir Sami Hyypiä í stað Daniel Agger, kannski hvílir Steve Finnan fyrir Jan Kromkamp, eða kannski hvílir hann Kewell og setur Riise á vænginn og Stephen Warnock í bakvörðinn? Ég hef ekki hugmynd, en ef við gerum ráð fyrir að hann stilli upp sínu sterkasta liði á morgun þá yrði það sennilega hið ofantalda.

Eitt er þó ljóst að Robbie Fowler byrjar inná. Að mínu mati þá væri vitleysa að sóa honum á bekknum á morgun, þar sem hann sýndi um helgina að hann ræður alveg við 60-70 mínútur á góðum hraða, auk þess sem hann fær aukaorku frá The Kop í heimaleikjum. Hann má svo ekki spila gegn manchester united í bikarnum um helgina og byrjar sennilega á bekknum á útivelli gegn Benfica eftir viku, þannig að ég sé ekkert því til fyrirstöðu að hann byrji inná á morgun. Svo er hann líka vanur því að skora gegn Arsenal á Anfield. :-)

MÍN SPÁ: Í fyrra var ég drulluhræddur um að við yrðum flengdir á Anfield af þessu liði, og var í raun ekki mikið fúll yfir tapleiknum á Highbury þar sem Arsenal voru einfaldlega með betra lið en við. Og kannski væru þeir það ennþá, ef þeir væru með alla sína menn heila. Það er hins vegar ekki raunin og ljóst að hvernig sem Arsene Wenger stillir upp liði á morgun þá er hann með algjörlega vængbrotinn hóp í höndunum. Við eigum að geta unnið þennan leik, sett tíu stig á milli okkar og Arsenal í deildinni og nánast gert út um von þeirra að ná okkur áður en tímabilið er úti.

Ég ætla að spá Liverpool 2-0 sigri á morgun í skemmtilegum, hröðum og opnum leik þar sem bæði lið munu leika til sigurs. Arsenal-mönnum nægir varla jafntefli og munu selja sig dýrt, en fyrir vikið skilja eftir glufur í stórskaddaðri vörn sinni. Steven Gerrard (hver annar?) og Robbie Fowler (að sjálfsögðu) munu skora mörkin. Það sögðu tærnar mér í morgun … :-)

Áfram Liverpool!!!

(1) = Æjá, Patrick Vieira fór víst frá þeim líka síðastliðið sumar. Gleymdi því …

.: Kristján Atli uppfærði kl. 16:43 | 909 Orð | Flokkur: Upphitun
Ummæli (14)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.








:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?




Flokkar

Almennt · Enska bikarkeppnin · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · HM 2006 · HM Félagsliða · HM leikskýrslur · Kannanir · Landslið · Leikmannakaup · Leikmenn · Leikskýrslur · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Myndbönd · Sjónvarp · Slúður · Topp10 · Um síðuna · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·

Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Einar Örn

Kristján Atli

Aggi

Síðustu leikir

·Liverpool 3 - West Ham 3 (6 - 4 eftir vítaspyrnukeppni)
·Portsmouth 1-3 Liverpool
·Liverpool 3 - Aston Villa 1
·Baros mætir á Anfield á morgun.
·West Ham 1 - Liverpool 2

Síðustu Ummæli

Andri: Stjáni, bara að svara fyrsta commentinu ...[Skoða]
Stjáni: Það er kannski bara best að horfa á lei ...[Skoða]
deep throat: Hef öruggar heimildir fyrir því að títne ...[Skoða]
Stjáni: Ég verð á ónefndu hóteli fyrir austan fj ...[Skoða]
trausti: Djöfullinn en ég held að þetta verði von ...[Skoða]
Hössi: Liðið er betra þegar Gerrard er á kantin ...[Skoða]
Elías Már: Og ef Jamie Carragher mun spila á morgun ...[Skoða]
Einar Örn: Hvar ætlar þú að vera, Stjáni? :-) ...[Skoða]
Don Fragapane: Já þá er bara að vera nálægt STJÁNA og d ...[Skoða]
HilmarSig: Campbell verður ekki með. Wenger kom fra ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Joaquin, Zenden, Dudek og Barragan
· Paletta skrifar undir samning... og æfingar byrja
· Tord Grip gagnrýnir Carragher.
· Hatem Trabelsi á leið til okkar?
· Cisse sár og gæti Anelka verið á leiðinni?
· Deportivo á eftir Barragan

Tenglar

Einar :: EOE.is

Kristján Atli.com


NewsNow Liverpool

SKY

Liverpool Echo

BBC

Liverpool (official)

LFC History

Liverpool.is

This Is Anfield

UEFA


Staðan í ensku

Tölfræði í ensku




Við notum
Movable Type 3.2

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License