beach
« Wigan 0 - Liverpool 1 | Aðalsíða | Garcia er ekki 100% og verður ekki með gegn Arsenal. »

12. febrúar, 2006
Staðan í deildinni

Tottenham náði aðeins að gera jafntefli á móti Sunderland í dag, þannig að við unnum 2 stig á Tottenham og Arsenal um helgina og héldum í við Man U. Í dag eru þá eru 13 leikir eftir í deildinni.

Þeir leikur eru eftifarandi:

Arsenal (H)
Man City (H)
Charlton (H)
Arsenal (Ú)
Newcastle (Ú)
Everton (H)
West Brom (Ú)
Bolton (H)
Blackburn (Ú)
Fulham (H)
West Ham (Ú)
Aston Villa (H)
Portsmouth (Ú)

Manchester United á 12 leiki eftir:

Wigan (H)
Newcastle (H)
West Brom (Ú)
Birmingham (H)
West Ham (H)
Bolton (Ú)
Arsenal (H)
Sunderland (H)
Tottenham (Ú)
Middlesboro (H)
Chelsea (Ú)
Charlton (H)

Af leikjum Liverpool, þá er aðeins einn á verulega sterkum útivelli, það er Arsenal. Newcastle er líka erfiður útivöllur, en það lið er hins vegar óútreiknanlegt.

manchester united á hins vegar tvo mjög erfiða útileiki, gegn Chelsea og Tottenham.

Af leikjunum, sem við eigum eftir, þá eru 3 leikir gegn 7 efstu liðunum (Arsenal x2, Bolton). manchester united á hins vegar eftir Bolton, Arsenal, Tottenham og Chelsea.

Ef ég ætti að spá um úrslit leikja, þá myndi ég tippa á þetta svona: Sigur: Arsenal (H), Man City, Charlton, Everton, West Brom, Blackburn, Fulham, Aston Villa, Portsmouth. Jafntefli: Newcastle, Bolton, West Ham. Tap: Arsenal (Ú). Samtals: 30 stig.

manchester united mun enda svona. Sigrar: Wigan, Birmingham, West Ham, West Brom, Sunderland, Charlton. Jafntefli: Tottenham, Bolton, Newcastle, Arsenal, Boro. Tap: Chelsea. Samtals 23 stig.

Niðurstaðan: Við endum með einu stigi meira en Man U. Hvað segiði, er þetta óskhyggja, eða raunhæft mat?

Það er allavegana fullkomlega ljóst að leikirnig gegn Arsenal eru gríðarlega mikilvægir fyrir þetta lið. Ef við náum 4 stigum úr þeim, þá erum við í mjög góðum málum. Ef við náum bara 2 stigum úr þeim, þá gætum við verið komnir 10 stigum á eftir Man U. Ef við hins vegar töpum þeim báðum, þá er Meistaradeildarsætið komið í hættu. Við verðum að vinna Arsenal á Anfield. Þetta Arsenal lið er í bullandi vandræðum með meiðsli og spilamennsku, þannig að þetta ætti að vera fullkomið tækifæri til að endurtaka leikinn frá því á Anfield í fyrra. Við erum með sterkara lið heldur en þá og þeir eru með veikara lið.

.: Einar Örn Einarsson uppfærði kl. 16:44 | 366 Orð | Flokkur: Enski Boltinn
Ummæli (8)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.








:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?




Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Aggi

Einar Örn

Hjalti

Kristján Atli

Sigursteinn

Síðustu leikir

·L'pool 3 - Bolton 0
·Tottenham 0 - Liverpool 1
·Blackburn 1 - Liverpool 0
·L'pool 2 - Watford 0
·Charlton 0-3 Liverpool

Leit:

Síðustu Ummæli

Höski Búi: Ég gerði eitthvað svipað í fyrra og bar ...[Skoða]
gb: það er nú ekkert alltaf betra að mæta li ...[Skoða]
Hólmar: Æji veit ekki. við erum líka í CL. og ek ...[Skoða]
Vargurinn: Varðandi þessa sigra þá er ég dálítið sv ...[Skoða]
Einar Örn: Jamm, búinn að leiðrétta þetta, Snorri. ...[Skoða]
Hannes: Ég er nú í smá svartsýniskasti. Farinn a ...[Skoða]
Snorri: Þú ferð með rangt mál ef þú heldur því f ...[Skoða]
Stefán: skemmtileg pæling.. þetta er blanda af ó ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Sagan endalausa....
· Arsenal á morgun
· Mascherano til Liverpool eða ekki?
· Enn af leikmannakaupum
· Blackburn búnir að fá tilboð í Neill!
· Xabi ekki að fara neitt

Tenglar

Einar :: EOE.is

Kristján Atli.com


NewsNow Liverpool

SKY

Liverpool Echo

BBC

Liverpool (official)

YNWA spjallborð

RAWK spjallborð

Soccernet

The Guardian

Daily Telegraph

Independent

LFC History

Liverpool.is

This Is Anfield

UEFA


Staðan í ensku

Tölfræði í ensku


The Liverpool Way Blog

RAWK blog

Kop Blog

Flokkar

Almennt · Auglýsingar · Enska bikarkeppnin · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · HM 2006 · HM Félagsliða · Kannanir · Landslið · Leikmannakaup · Leikmenn · Leikskýrslur · Leikvangur · Liðsuppstilling · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Myndbönd · Sjónvarp · Slúður · Topp10 · Um síðuna · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·




Við notum
Movable Type 3.33

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License