beach
« Stevie með, Crouchie meiddur | Aðalsíða | Wigan 0 - Liverpool 1 »

10. febrúar, 2006
Wigan - Liverpool

wigan vs. liverpool.gif Á morgun er það útileikur gegn Wigan sem er í 6.sæti með 39 stig. Leikurinn á Anfield fór 3-0 þar sem Crouch skoraði 2 mörk. Það hefur gengið afar illa hjá okkur á útivelli undanfarið eða 3 töp í röð. Ekki hefur gengið betur hjá framherjunum okkar en Moro og Crouch hafa ekki skorað í 8 leikjum í röð og Cisse í 7 leikjum í röð. Spurning hvort Fowler dragi þá að landi? Ég tel líklegt að liðið okkar verði svona á morgun:

Dudek

Finnan - Carragher - Agger - Riise

Kromkamp - Alonso - Gerrard - Kewell

Cissé - Morientes

Varamenn: Carson, Fowler, Hyypia, Hamann, Sissoko.

Rafa gæti einnig haft Gerrard á kantinumog Sissoko eða Hamann á miðjunni. Það er afar mikilvægt fyrir okkur að vinna þennan leik þar sem við höfum einungis fengið 1 stig af síðustu 12 sem er vægast sagt ömurleg frammistaða. Ok við erum búnir að spila úti gegn manchester united og Chelsea sem er ávallt erfitt.

Jewell er í töluverðum vandræðum með framherjana sína en Jason Roberts er í 3ja leikja banni, Mellor má ekki spila gegn Liverpool og síða eru þeir Connolly og McCulloch báðir meiddir. Pascal Chimbonda er í banni. Síðan er óljóst hvort Henri Camara nái í tíma en hann er búinn að vera í Afríkubikarnum. Það eru tveir fyrrum Liverpool menn líklega í liðinu hjá Wigan á morgun, þeir Henchoz og Thompson. Það er klárt mál að Henchoz vilji sýna Rafa á morgun að hann hafi gert mistök að losa sig við hann (þótt ég hafi verið sammála Rafa í því).

Paul Jewell tók við Wigan-liðinu fyrir þremur og hálfu ári, en þá voru þeir í fjórðu efstu deild Englands. Hann kom þeim strax upp um tvær deildir, staldraði svo í eitt ár í næst-efstu deildinni (sem hét þá 1. deildin en heitir nú Championship-deildin) og svo í fyrra unnu þeir þá deild frekar auðveldlega. Eru nú komnir upp í Úrvalsdeild og virðast ætla að taka hana með svipuðu trompi - þannig að við getum alveg eins búist við að þetta lið sé komið til að vera og muni blanda sér í toppbaráttuna á næstu árum. Það er ekki ólíklegt, en eigandi liðsins, Dave Whelan, hefur dælt peningum í klúbbinn og ætlar að halda áfram að gera það sem til þarf til að koma liðinu fyllilega í fremstu röð.

Líklegt lið hjá Wigan á morgun:

Pollit

Baines – De Zeeuw - Henchoz - Ziegler

Thompson - Kavanagh - Mahon – Francis - Bullard

Camara

Þetta verður hörkuleikur og ég heimta sigur og ég heimta mörk. Hvort það dugi til þess að við förum aftur að spila eins og menn og skora mörk einnig þá er ljóst að við verðum að rífa okkur upp aftur. Þessi leikur gæti hjálpað okkur mikið ef sigur vinnst og það sannfærandi. Ég hugsa að Fowler fái í það minnsta hálftíma í leiknum og hann skorar (vonandi).

Í lokinn þá óska ég okkur til hamingju með það að Rob Styles er dómari leiksins.

.: Aggi uppfærði kl. 19:36 | 498 Orð | Flokkur: Upphitun
Ummæli (4)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?





Flokkar

Almennt · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · HM Félagsliða · Landslið · Leikmannakaup · Leikmenn · Leikskýrslur · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Slúður · Topp10 · Um síðuna · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·

Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Einar Örn

Kristján Atli

Aggi

Síðustu leikir

·Wigan 0 - Liverpool 1
·Charlton 2 - "Liverpool" 0
·Chelsea 2 - Liverpool 0
·L'pool 1 - Birmingham 1
·Pompey 1 - L'pool 2

Síðustu Ummæli

Liverbird: jæja bræður og systur, byrjunarliðið er ...[Skoða]
MR DALGLISH: Dudek ...[Skoða]
Jón Frímann: Maður getur vonað ýmislegt!!!!!! en eft ...[Skoða]
Eiki Fr: Uppstillingin er ekki ýkja fjarri lagið ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Wigan 0 - Liverpool 1
· Wigan - Liverpool
· Stevie með, Crouchie meiddur
· Úr leikskýrslu
· Argentínskur varnarmaður á leiðinni í sumar?
· Tvífarar dagsins

Tenglar

Einar :: EOE.is

Kristján Atli.com


NewsNow Liverpool

SKY

Liverpool Echo

BBC

Liverpool (official)

LFC History

Liverpool.is

This Is Anfield

UEFA


Staðan í ensku

Tölfræði í ensku




Við notum
Movable Type 3.2

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License